Segir rótina að loftslagsbreytingum vera hið kapítalíska heimsskipulag

Þing­maður Vinstri grænna telur að Íslend­ingar þurfi að horfast í augu við það að að rótin að slá­andi nið­ur­stöðum skýrslu IPCC og loft­lags­breyt­ingum sé kap­ít­al­ískt heims­skipu­lag.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Vinstri grænna segir að rótin að slá­andi nið­ur­stöðum skýrslu Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) og loft­lags­breyt­ingum sé kap­ít­al­ískt heims­skipu­lag og að Íslend­ingar þurfi að horfast í augu við það. Þetta kom fram í ræðu hennar á Alþingi í morgun.

„Kap­ít­al­ism­inn í sinni allra verstu mynd, hefur haft þau áhrif að neysla okkar hefur haft eyði­leggj­andi áhrif á nátt­úr­una okkar, jörð­ina okkar og lofts­lagið,“ segir Rósa Björk en hún telur að bregð­ast þurfi við lofts­lags­breyt­ingum af fullri hörku. Róttækra félags­legra, póli­tískra, efna­hags­legra og menn­ing­ar­legra breyt­inga sé þörf.

Hún bendir enn fremur á að tím­inn sé naumur. „Við þurfum að ráð­ast í rót­tækar breyt­ingar á lífs­háttum okkar og skipu­lagi sam­fé­lags­ins núna út frá þeirri meg­in­hugsun að vernda nátt­úru og koma í veg fyrir meira tjón. Það er alls ekki nóg, þó að vel sé, að koma fram með fína aðgerða­á­ætlun í loft­lags­málum, sem er nauð­syn­legt skref en ekki enda­stöð. Og við þurfum að gera meira en að vera á tánum.“

Í lok ræð­unnar segir Rósa Björk þetta vera risa­stór mark­mið sem mörgum óar við en þau séu nauð­syn­legt mark­mið. „Ef að ef okkur tak­ist það ekki þá skiljum við ekki eftir neina mögu­leika fyrir næstu kyn­slóðir að lifa líf­væn­legu lífi.“

Segir stjórnvöld taka skýrsluna alvarlega

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, tók einnig til máls á Alþingi í morgun. Hann segir að skýrslan sé afar mik­il­væg og bendir á að hún hafi af mörgum verið kölluð loka­við­vörun vís­inda­sam­fé­lags­ins um að rót­tækra breyt­inga sé þörf til að kom­ast hjá skelfi­legum afleið­ingum stjórn­lausrar hnatt­rænnar hlýn­unar.

„Skýrsla IPCC er þörf brýn­ing til Íslands og allra ríkja heims um að lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum eru alvöru mál og að tími til aðgerða er naumur. Stjórn­völd hér á landi munu taka þessi skila­boð inn í vinnu við nýja útgáfu af aðgerða­á­ætlun stjórn­valda, sem lítur dags­ins ljós á næsta ári, eftir sam­ráðs­ferli sem nú stendur yfir. Við tökum skýrsl­una þannig mjög alvar­lega,“ segir hann.

Guð­mundur Ingi segir að Ísland geti þó ekki eitt og sér tryggt árangur á heims­vísu, frekar en nokk­urt eitt ríki. En skyldan sé rík. „Við höfum mörg tæki­færi til að draga úr losun og auka kolefn­is­bind­ingu og getum auk þess náð öðrum mark­miðum um leið, svo sem minni heilsu­spill­andi loft­mengun og end­ur­heimt skadd­aðra vist­kerfa,“ segir hann og bætir því við að nú sé unnið að þessu.

Telur aðgerðaráætlunin endurspegla áherslur skýrslunnar

Guð­mundur Ingi telur enn fremur að aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar end­ur­spegli áherslur skýrsl­unnar. Hann segir að áætl­unin taki á öllum helstu upp­sprettum los­unar og mögu­leikum á kolefn­is­bind­ingu og með því að stór­auka fjár­magn til aðgerða. Það sé vel þekkt á alþjóða­vett­vangi að hér á landi sé notuð nær ein­göngu end­ur­nýj­an­leg orka til raf­magns­fram­leiðslu og hús­hit­unar.

„Við höfum nú tæki­færi til að vera í far­ar­broddi við að nota end­ur­nýj­an­lega orku til sam­gangna og síðar í sjáv­ar­út­vegi. Þannig eru metn­að­ar­full áform um raf­væð­ingu bíla­flot­ans, upp­bygg­ingu inn­viða vegna þess, auknar almenn­ings­sam­göngur o.s.frv. Þannig getum við ráð­ist í þriðju bylt­ing­una í notkun end­ur­nýj­an­legrar orku. Fá lönd hafa líka stærri tæki­færi til að binda kolefni í gróðri og jarð­vegi og þar getum við aftur sýnt mik­il­vægt for­dæmi. Og það skiptir máli, ekki síst fyrir kolefn­is­hlut­leysi,“ segir hann.

Hann nefnir jafn­framt að íslenskt hug­vit og þekk­ing í lofts­lagsvænni tækni hafi vakið athygli. Þar megi nefna nið­ur­dæl­ingu koltví­sýr­ings á Hell­is­heiði og lofts­lagsvæna tækni í skipum. Mik­il­vægt sé að Íslend­ingar efli nýsköpun og það verði meðal ann­ars gert með því að koma Lofts­lags­sjóði í gagnið, líkt og kveðið er á um í aðgerða­á­ætl­un­inni.

„Í aðgerða­á­ætlun okkar eru settar fram sviðs­myndir um losun í öllum geirum sam­fé­lags­ins og 34 aðgerðir settar fram. Við þurfum vissu­lega nákvæm­ari útreikn­inga til að sjá hverju hver aðgerð skilar, um það erum við með­vituð, og sú vinna tekur nú við, m.a. miðað við sviðs­mynd­irnar sem að ofan eru nefndar,“ segir Guð­mundur Ingi. Hann telur fók­us­inn skýran. „Meg­in­sam­dráttur á að eiga sér stað með því að draga úr olíu­notkun, og minnka magn koltví­sýr­ings í and­rúms­lofti með kolefn­is­bind­ingu. Þannig eru aðgerðir í aðgerða­á­ætlun í takti við ráð­legg­ingar IPCC skýrsl­unnar.“

Hann seg­ist að lokum vera afar ánægður með að ný aðgerða­á­ætlun marki straum­hvörf varð­andi fjár­magn og afl til lofts­lags­mála og það eitt og sér séu stór­tíð­indi í umhverf­is­vernd á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár