„Loftslagsáætlun ríkisstjórnarinnar mun ekki bjarga neinu“

Smári McCarthy segir lofts­lags­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar ekki hafa verið nægi­lega góða áður en ný skýrsla IPCC kom út en núna sé hún hlægi­leg.

Smári McCarthy
Smári McCarthy Mynd: Bára Huld Beck

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, segir að þegar nið­ur­stöður nýrrar skýrslu Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) eru skoð­aðar í sam­hengi við lofts­lags­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar komi glögg­lega í ljós að áætl­unin muni ekki bjarga neinu. Hún hafi ekki verið nógu góð áður en ný skýrsla IPCC kom út en núna sé hún hlægi­leg.

Þetta kom fram í máli Smára á Alþingi í sér­stakri umræðu um skýrsl­una í morgun.

Hann segir skýrsl­una vera hryll­ings­lestur. „Stutta útgáfan er að eini mögu­leik­inn okkar til að tak­marka hnatt­ræna hlýnun við 1.5°C með­al­aukn­ingu á heims­vísu felst í því að hætta að nota jarð­efna­elds­neyti eins hratt og hægt er, og breyta íslenskum iðn­aði þannig að útblæstri koltví­sýr­ings verði hætt. Töluverð föngun kolefnis getur frestað þess­ari nið­ur­stöðu tíma­bundið, en ein­göngu stórar breyt­ingar á for­sendum sam­fé­lags­ins munu koma í veg fyrir ástand þar sem í besta falli millj­ónir deyja, þús­undir teg­unda þurkast út og líf­væn­leiki jarð­ar­innar verður veru­lega skadd­aður. Við skulum láta versta til­fellið liggja milli hluta í bili, en vís­indin eru skýr á því að þetta er umræða upp á líf og dauða fyrir allt mann­kynið. Í þeirri full­yrð­ingu er engin óþarfa drama, þetta er blá­kaldur veru­leik­inn,“ segir hann.

Smári telur að allir verði að skilja af hverju það stefni í að eftir örfáa ára­tugi verði jörðin ekki byggi­leg mann­fólki. Hann segir að í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni séu engin skýr mark­mið um hversu mik­inn sam­drátt í CO2-losun eigi að fylgja hverri aðgerð. Flestar aðgerð­irnar snú­ist ein­ungis um ómark­vissa til­færslu pen­inga eða áætl­un­ar­gerð, eins og það eitt muni bjarga ein­hverju.

„Losun Íslands eru 4,3 millj­ónir tonna koltví­sýr­ings árlega. Til að ná mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins fyrir 2030 þarf CO2 losun að vera komin í rétt um 3 millj­ónir tonna á ári,“ segir hann og bendir á að Íslend­ingar hafi 12 ár til að draga úr þess­ari losun, eða línu­lega um 83 þús­und tonna árlegan sam­drátt í losun. Hann segir það þó ekki nóg. „Til að vera innan 1.5°C markanna, sam­kvæmt skýrslu IPCC, þarf tölu­vert meiri sam­drátt. IPCC mælir með nettó núll losun fyrir árið 2055, til að hald­ast innan þol­marka,“ segir hann.

Markmiðið er að draga saman um 119 þúsund tonn

Smári segir jafn­framt að Íslend­ingar geti ekki eytt meira en þeir eiga. „Losun okkar þarf að verða réttum megin við núllið fyrir miðja öld, ann­ars horfum við fram á vist­fræði­legt gjald­þrot. Til að ná því þarf línu­legan sam­drátt um 119 þús­und tonn á ári. Hvert ár sem við bíðum með að hefj­ast handa eykur á vanda­málið.

Mark­miðið er sumsé 119 þús­und tonna sam­dráttur á ári. En áætlun rík­is­stjórn­ar­innar er ekki með neinn tölu­settan sam­drátt. Það á að verja 1.5 millj­örðum króna í upp­bygg­ingu inn­viða fyrir raf­bíla, og gera á nýskrán­ingu bíla sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti ólög­lega árið 2030. Þá á að verja 4 millj­örðum í kolefn­is­bind­ingu, sem frestar nið­ur­stöð­unni en stöðvar hana ekki. Við getum varla bundið neitt í dag og munum ekki geta bundið koltví­sýr­ing enda­laust. Þetta, ásamt öðrum aðgerðum sem snú­ast aðal­lega um rann­sóknir, gerir sam­tals 6 millj­arða króna, yfir fimm ára tíma­bil, eða rétt rúmur millj­arður króna á ári. Lausn í lofts­lags­málum verður ekki keypt fyrir tæp­lega 0.1 pró­sent af árlegum fjár­lögum rík­is­ins,“ segir hann.

Smári telur þó að hægt sé að ná mark­mið­inu en til þess þurfi tölu­vert beitt­ari nálgun. „Að fram­leiða tölu­verðan hluta elds­neyt­is­ins sem við notum hér inn­an­lands með efna­ferlum sem ganga út á föngun koltví­sýr­ings frá verk­smiðjum og virkj­unum er hluti af lausn­inni. Við gætum náð að minnka losun um 230 þús­und tonn fyrir lok 2021 með góðri fjár­fest­ingu strax.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár