Sigurður með 1,8 milljónir á mánuði fyrir stjórnarformennsku í Kviku

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins drýgir tekjur sínar umtals­vert með því að sitja sem stjórn­ar­for­maður Kviku banka.

Framkvæmdastjóri
Fram­kvæmda­stjóri Sigurður Hann­es­son hefur verið fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins frá árinu 2017. Mynd: SI

Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, fékk alls 21,5 millj­ónir króna í laun fyrir að vera stjórn­ar­for­maður Kviku banka. Það gera um 1,8 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali. Laun Sigurðar fyrir stjórn­ar­for­mennsk­una hækk­uðu á milli ára en hann var með tæp­lega 1,7 millj­ónir króna á mán­uði árið 2022. 

Samkvæmt hátekju­lista Heim­ild­ar­innar, sem birtur var í ágúst í fyrra, var Sigurður sá hags­muna­vörður lands­ins sem var með hæstu launin árið 2022. Að með­al­tali voru mán­að­ar­laun hans það ár rúm­lega 4,1 milljón króna. Þar var um að ræða bæði laun hans fyrir að sinna starfi fram­kvæmda­stjóra einna stærstu hags­muna­gæslu­sam­taka lands­ins og þau laun sem hann þáði fyrir stjórn­ar­for­mennsku í Kviku. 

Sig­urður var fyrst kjör­inn í stjórn Kviku banka á aðal­fundi hans í lok mars 2020. Hann hefur verið fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðn­að­ar­ins frá miðju ári 2017 en starf­aði þar áður um nokk­urra ára skeið sem fram­kvæmda­stjóri á eigna­stýr­ing­ar­sviði Kviku banka.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Getur hann lifað af þessari upphæð ?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár