„Verum ekki á móti stríðinu — berjumst gegn stríðinu!“

Mótæli í Pétursborg
Mótæli í Pét­urs­borg

Rúss­neski stjórn­ar­and­stöðu­leið­tog­inn Alexei Navalny hefur birt á Twitter heróp sitt til Rússa (og ann­arra) um að berj­ast gegn árásinni á Úkraínu.

Svo hljóðar það:

„Við — Rússar — viljum vera þjóð friðar. En því miður myndu fáir kalla okkur það núna.

En við skulum að minnsta kosti ekki verða þjóð af hræddu þöglu fólki. Þjóð af rag­geitum sem þykj­ast ekki taka eftir árás­ar­stríð­inu gegn Úkraínu sem hleypt var af stað af okkar aug­ljós­lega vit­skerta keis­ara.

Ég get ekki, vil ekki og mun ekki þegja yfir því að ein­hver upp­diktuð þvælu­saga síð­ustu 100 ára sé notuð sem afsökun fyrir Rússa til að drepa Úkra­ínu­menn og fyrir Úkra­ínu­menn til að drepa Rússa í varn­ar­skyni.

Það er komið fram á þriðja ára­tug 21. aldar og við horfum í sjón­varp­inu á fólk brenna í skrið­drekum eða sund­ur­sprengdum húsum. Við horfum á alvöru ógn­anir um að hefja kjarn­orku­stríð í sjón­varp­inu.

Sjálfur er ég frá Sov­ét­ríkj­unum. Ég fædd­ist þar. Og einn aðalfras­inn úr barn­æsku minni var „Berjist fyrir friði“. Ég heiti á alla að fara. nú út á götu og berj­ast fyrir friði.

Pútin er ekki Rússland. Og ef það er eitt­hvað í Rúss­landi sem við getum verið stolt af þá eru það þær 6,824 mann­eskjur sem voru hand­teknar af því — alveg af sjálfs­dáðum — fóru þær út á götu með skilti þar sem stóð „Ekkert stríð“.

Sumir segja að þeir sem ekki geta sjálfir tekið þátt í mót­mæla­fundum og ekki hætt á að lenda sjálfir í fang­elsi geti ekki hvatt aðra til þess. Ég er nú þegar í fang­elsi svo ég held ég geti það.

Við getum ekki beðið lengur. Hvar sem þú ert, í Rúss­landi, Belarús eða hinum megin á hnett­inum, farðu á aðal­torgin í bænum þínum og klukkan tvö um helgar. 

Ef þú ert erlendis farðu að rúss­neska sendi­ráð­inu. Og ef þú getur skipu­lagt mót­mæla­fund, gerðu það um helgar. Og já, kannski koma bara örfáir fyrsta dag­inn. Og kannski enn færri þann næsta.

En við verðum að bíta á jaxl­inn, yfir­vinna ótt­ann og stíga fram og krefj­ast þess að endir verði bund­inn á stríðið. Í stað­inn fyrir hvern þann sem er hand­tek­inn verða að koma tveir nýir.

Ef við þurfum að fylla fang­elsin og lög­reglu­bíl­ana með okkur sjálfum til að stöðva stríðið, þá skulum við fylla fang­elsin og lög­reglu­bíl­ana með okkur sjálfum.

Allt kostar og nú, vorið 2022, verðum við að borga upp­sett verð. Enginn mun gera það fyrir okkur. Við skulum ekki „vera á móti stríð­inu“. Við skulum berj­ast gegn stríð­inu.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár