AGS spáir því að enn hægist á vexti heimsframleiðslunnar

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn hefur uppfært spár sínar um þróun mála í hagkerfum heimsins. Myndin hefur dökknað frá því í apríl og segir sjóðurinn að seðla­bankar verði að halda áfram að reyna að koma böndum á verðbólgu.

Óvissuþættirnir í spá AGS eru allnokkrir, en flestir sagðir í þá áttina að staðan verði enn verri í efnahagsmálum heimsins, ef þeir raungerist.
Óvissu­þætt­irnir í spá AGS eru all­nokkrir, en flestir sagðir í þá átt­ina að staðan verði enn verri í efna­hags­málum heims­ins, ef þeir raun­ger­ist. Mynd: Pexels

Hagvöxtur á heimsvísu verður um 3,2 prósent á þessu ári, samkvæmtuppfærðri spá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS), eða 0,4 prósentu­stigum lægri en áætlað var í spá sjóðsins í apríl.

Á næsta ári er nú útlit fyrir 2,9 prósenta aukningu á heims­fram­leiðslunni, samkvæmt spá sjóðsins, en fyrri spá frá því í apríl gerði ráð fyrir því að hagvöxtur á heimsvísu yrði næstum prósentu­stigi meiri, eða 3,8 prósent árið 2023.

Nú er staðan að mati sjóðsins töluvert dekkri en hún var í apríl. Samkvæmt því sem segir í umfjöllun á vef AGS í dag hefur verðbólga umfram fyrri spár, sér í lagi í Banda­ríkjunum og stærstu hagkerfum Evrópu, leitt til þess að það þrengist um í efnahags­málum heimsins. Einnig hefur Kína ekki náð að rífa sig upp úr kórónu­veiru­faraldrinum með tilheyrandi truflunum á atvinnu­starfsemi og stríðs­átökin í Úkraínu hafa einnig sitt að segja.

Stærstu hagkerfi heims í hægagangi

Í umfjöllun AGS segir að draga muni úr vexti í öllum þremur stærstu hagkerfum heims, Banda­ríkjunum, Kína og á evru­svæðinu frá fyrri spám.

Býst AGS nú við því að hagvöxtur ársins 2023 í Banda­ríkjunum nemi einungis einu prósenti á næsta ári, í ljósi þverrandi kaup­máttar bandarískra heimila og hertri peningamála­stefnu bandaríska seðla­bankans.

Þá muni hagvöxtur í Kína fara niður í 3,3 prósent á þessu ári, ekki síst vegna fasteigna­krísu sem þar geisar. Á evru­svæðinu er svo búist við 1,2 prósenta hagvexti á næsta ári, vegna áhrifa stríðsins í Úkraínu og hertrar peninga­stefnu.

Þrátt fyrir að víða hafi verið hert á taumhaldi peninga­stefnunnar með vaxta­hækkunum seðla­banka hefur AGS hækkað verðbólguspá sína frá því í apríl og býst nú við að verð­bólgan verði bæði meiri og lang­vinnari en fyrri spá gerði ráð fyrir.

Staðan gæti orðið enn verri

Óvissu­þættirnir í spá AGS eru svo flestir sagðir í þá áttina að staðan verði enn verri í efnahags­málum heimsins, ef þeir raun­gerist.

Í svart­sýnni en þó mögulegri sviðsmynd, þar sem til dæmis Rússar myndu hætta alfarið að selja gas til Evrópu, gæti verðbólga risið enn frekar og vöxtur heims­fram­leiðslunnar dregist niður í 2,6 prósent á þessu ári og niður í 2 prósent á næsta ári - sem einungis hefur gerst fimm sinnum síðan árið 1970.

Seðlabankar ættu að halda áfram að reyna að temja verðbólguna

AGS segir að sú samhenta herðing peninga­stefnu ýmissa ríkja sem sést hefur að undan­förnu eigi sé fordæma­laus í sögunni og að sjóðurinn búist við að aðgerðirnar bíti, með minnkandi hagvexti og hjaðnandi verðbólgu.

Í umfjöllun AGS segir að hert peninga­stefna muni óhjá­kvæmilega hafa efnahags­legan kostnað í för með sér, en ráðleggur þó Seðla­bönkum sem eru byrjaðir að þrengja aðgang að fjármagni til þess að halda áfram á sömu braut þar til bönd hafa náðst á verð­bólguna.

Sjóðurinn segir að ríkis­stjórnir geti með einbeittum stuðningi hjálpað viðkvæmum hópum að takast á við þær efnahags­legu þrengingar sem eru hafnar, en ráðleggur þeim þó, í ljósi þeirra miklu ríkis­útgjalda sem veiru­faraldurinn hefur kallað á undan­farin tvö ár, að mæta þeim útgjöldum með hærri sköttum eða lægri útgjöldum hins opinbera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár