Þess vegna er ábyrgðin þeirra - Druslugangan 2015

Þórdís Elva Þorvalds­dóttir skilgreinir ábyrgðina á kynferðis­brotum.

Stundin birtir einn kafla á dag úr bók Þórdísar Elvu Þorvalds­dóttur, Á mannamáli, sem miðar að því að eyða rang­hugmyndum um kynferðis­ofbeldi. Viðfangs­efni bókarinnar er kynbundið ofbeldi, það er ofbeldi þar sem meirihluti brotaþola eru konur og miðast dæmin við það. Höfundur tekur þó fram að kynferðis­ofbeldi getur verið beitt af öllum kynjum og beinst gegn fólki af öllum kynjum.​

Ábyrgð

Eftir­farandi spurning var lögð fyrir mig af áfalla­sérfræðingi sem ég tók viðtal við: „Segjum sem svo að þú setjir veskið þitt inn í bílinn þinn og áttir þig síðan á því að þú gleymdir bíllyklunum inni. Þú hleypur inn til að sækja bíllyklana en skilur veskið eftir í bílnum ólæstum. Á meðan kemur þjófur og stelur veskinu. Hver ber ábyrgð á þjófnaðinum, þú eða hann?“ 

Mig rak í vörðurnar. „Hann,“ svaraði ég hikandi. 

„Af hverju segirðu það?“ „Því þó ég hafi tekið áhættu með því að skilja veskið mitt eftir, þá er það samt ekki glæpsamlegt. Það er aftur á móti glæpur að stela,“ sagði ég.

„Nákvæmlega. Þú tókst áhættu með því að skilja veskið eftir, sem er kannski óskynsamlegt, en ekki ólöglegt. Þjófurinn framdi hins vegar glæpinn og ber því alfarið ábyrgð á honum.“ 

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Þórdís Elva Þorvalds­dóttir Bókin Á mannamáli var tilnefnd til Íslensku bókmennta­verð­launanna 2009 og Samfélags­verð­launanna. Hún vann Fjöru­verðlaunin og hlaut Jafnréttis­viðurkenningu Stígamóta

Konu nokkurri er boðið í teiti í miðbænum að vetrar­lagi. Fyrr um daginn gleymir hún sér við vinnu og áttar sig skyndi­lega á því að hún er orðin of sein í samkvæmið. Hún þeysist heim, skiptir um föt og ákveður að klæðast stuttu pilsi til að leggirnir sem hún hefur verið að móta með hnit­miðuðu átaki í ræktinni fái að njóta sín. Í teitinu stígur vínið henni fljótt til höfuðs því henni vannst ekki tími til þess að borða kvöldmat. Hún verður málglöð og gefur sig á tal við kunningja, sem og ókunnuga í teitinu. Að lokum ákveður hún að nú sé nóg komið og heldur heim á leið. Það er slydda og henni verður kalt þar sem hún bíður eftir leigubíl. Maður sem hún átti orða­skipti við í teitinu gengur framhjá leigu­bílaröðinni og sér hana standa skjálf­andi í snjónum. Hann býður henni far heim. 

Ef konan vaknar daginn eftir með kvef af sökum þess að hafa verið illa klædd í íslensku vetrar­veðri hefur hún ekki við neinn annan að sakast en sjálfa sig. Ef hún vaknar með skerandi timbur­menn eftir áfengis­drykkjuna gildir slíkt hið sama. Þetta eru ákvarðanir sem hún tók gagnvart sjálfri sér, svo þær skrifast á ábyrgð konunnar. Ef maðurinn sem bauð henni far heim ákveður að keyra með hana á afvikinn stað og nauðga henni er það hins vegar ekki á ábyrgð konunnar. Vissulega má halda því fram að það sé fólgin áhætta í því að þiggja far heim með lítt kunnugum manni. Óskynsamlegt, en ekki ólöglegt. Að nauðga einhverjum er hins vegar glæpur með sextán ára hámarks­refsingu. 

Hætturnar leynast víðsvegar í lífinu. Maður tekur áhættu í hvert sinn sem maður sest undir stýri. Maður tekur áhættu ef maður hleypur á sund­laugar­bakkanum, ef maður horfir ekki til beggja átta áður en gengið er yfir götu, ef maður kynnir sér ekki aukaverkanir lyfja, ef maður les ekki leið­beiningar, ef maður prófar ekki hita­stigið í heita pottinum áður en farið er ofan í, ef maður borðar of mikið, ef maður borðar of lítið, ef maður fer ekki reglulega í læknis­skoðun, ef maður yfirfer ekki reyk­skynjarann, ef maður fer í siglingu, ef maður spennir ekki bílbeltið, ef maður stundar óvarið kynlíf, ef maður fylgist ekki með öryggis­leið­beiningunum í flugi, ef maður hreyfir sig ekki reglulega, ef maður kveikir á óvörðum kertum og ef maður veit ekki hvar næsti neyðar­útgangur er. Listinn er endalaus. Maður neyðist til að reyna að dansa eftir línunni eftir bestu getu. Missi maður jafnvægið þarf maður að lifa með afleiðingum þeirra ákvarðana sem reyndust kannski síður skynsamlegar þegar upp er staðið. En maður getur bara borið ábyrgð á sjálfum sér. Þetta kristallast til dæmis í ölvunar­akstri. Þú berð ábyrgð á þínu aksturs­lagi og að virða umferðar­reglur. Ef einhver annar ákveður að setjast drukkinn undir stýri, þá stofnar viðkomandi ökumaður lífi þínu í hættu með ákvörðun sinni. Burtséð frá því hvað þú vandar þig við aksturinn. Þú getur aldrei borið ábyrgð á ákvörðun ölvaða ökumannsins, rétt eins og þolandi kynferðis­ofbeldis getur ekki borið ábyrgð á ákvörðun ofbeldis­mannsins.

Í ljósi þessa mætti halda því fram að það sé áhætta fólgin í því að eiga fjöl­skyldu og vini. 

Dæmið sem ég tók að ofan er undan­tekningar­tilfelli. Fæstar nauðganir eru framdar af ókunnugum mönnum sem bjóða konum far á fölskum forsendum. Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta 2007 varð yfir­gnæfandi meirihluti eða um 80% brotaþola fyrir kynferðis­ofbeldi af hálfu maka, fjölskyldu­meðlims, umsjónar­aðila, vinar eða samstarfs­manns. Tæpur helmingur þeirra sem leitaði til Neyðar­móttökunnar í Fossvogi á árunum 2003–2007 þekkti ofbeldis­manninn fyrir (með sama hætti og greint er frá hér að ofan). Rúmur fimmtungur í viðbót lýsti tengslunum sem stuttum kynnum; einungis 26% sagði árásar­aðilann vera alfarið ókunnugan sér. Í ljósi þessa mætti halda því fram að það sé áhætta fólgin í því að eiga fjöl­skyldu og vini. Þó má einnig halda því fram að án vina og vanda­manna sé tilveran fátækleg. Að án mannlegra samskipta sé lífið ekki þess virði að lifa því.

Nauðgun er glæpur. Burtséð frá klæða­burði, áfengis­neyslu, daðri, viðnámi og tengslum við árásar­manninn. Ábyrgðin á glæp liggur alfarið hjá þeim sem kýs að fremja hann. 

Druslu­gangan er alþjóðleg kröfu­ganga sem á sér upptök í ummælum kanadísks lögreglu­þjóns sem lét þau orð falla árið 2011 að konur gætu fyrir­byggt nauðganir ef þær klæddu sig ekki eins og druslur. Íslenska Druslu­gangan 2015 verður haldin 25. júlí kl. 14:00.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár