Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs

Enn harðnar við­skipta­deila Banda­ríkj­anna og Kanada með nýjum tollum, inn­flutn­ings­banni og hót­unum gegn kanadískum fyr­ir­tækjum. Mark Carney segir Kanada til­búið að axla kostn­að­inn af minni efna­hags­tengslum við Banda­ríkin.

Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hóf nýja lotu í tolla­stríði sínu við Kanada í gær með því að banna inn­flutn­ing á áfengi og ýmsum öðrum vörum og hækka tolla á aðrar. Engin merki eru um að deilan sé í rénun.

Mark Carney, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, stóð fastur fyrir en við­ur­kenndi að minnk­andi efna­hags­tengsl við Banda­ríkin hefðu kostnað í för með sér. Hann sagði ávinn­ing­inn þó vega þyngra en sárs­auk­ann.

Fjöldi kanadískra vara, allt frá dýnum til vél­báta og golf­bíla, mun sæta 50 pró­senta við­bót­ar­tolli frá og með 15. sept­em­ber, sam­kvæmt til­skipun Trumps sem gefin var út seint í gær.

Inn­flutn­ings­bannið, sem bein­ist að ýmsum áfengum drykkjum auk sumra mjólk­ur­vara, svo sem mysu, tekur gildi 29. sept­em­ber, sam­kvæmt öðrum til­skip­unum sem gefnar voru út á sama tíma.

Hefnd­ar­tollar Kanada höfðu tekið gildi gildi fyrr á þriðju­dag og ná til inn­flutn­ings frá Banda­ríkj­unum að verð­mæti um 2.400 millj­arða króna, …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár