Bakkabræður teknir í samfélagssátt

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Bakka­bræður í uppsetningu Leik­hópsins Lottu.

Leikhópurinn Lotta: Bakkabræður
Leik­hóp­ur­inn Lotta: Bakka­bræður Mynd: Aðsend mynd

Leikhópurinn Lotta: Bakkabræður

Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen

Leik­stjórn: Þórunn Lárusdóttir

Dans­höfundur: Viktoría Sigurðar­dóttir

Höfundar lagatexta: Anna Bergljót Thorarensen og Baldur Ragnarsson

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirs­dóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson

Leikmynda­hönnun: Andrea Ösp Karls­dóttir og Sigsteinn Sigur­bergsson

Búninga­hönnun: Kristína R. Berman

Hljóð­hönnun og útsetningar: Þórður Gunnar Þorvaldsson

Leikarar: Andrea Ösp Karls­dóttir, Huld Óskars­dóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Sigsteinn Sigur­bergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Viktoría Sigurðar­dóttir.

Það þarf ekki að óttast um menningar­arfinn, ef litið er til þess hvaða viðfangs­efni ungt leiklistar­fólk taka sér fyrir hendur og gera úr skemmtilegar leik­sýningar. Síðasta sýning sem undir­ritaður fjallaði um áður en samkomu­bann skall á var sýning Miðnættis leikhúss í samvinnu við Leikfélag Akureyrar á Djáknanum á Myrká og varla er búið að opna fyrir samkomur á borð við leikhús­viðburði fyrr en Leik­hópurinn Lotta kallar til sýningar á Lottutúni í Elliða­árdal og frumsýnir sýningu sem byggir á þjóð­sögunum um Bakka­bræður.

Um báðar þessar sýningar má segja að tekið er á viðfangs­efninu af virðingu fyrir bæði menningar­arfinum og áhorf­endum og er það vissulega vel – en það sem skiptir kannski öllu meira máli er að í báðum tilvikum er viðfangs­efnið tekið frjáls­legum tökum, aðlagað að þeim fjölmiðli sem leikhúsið er og unnið útfrá þeim frásagnar­meðulum sem leik­listin hefur upp á að bjóða. Með öðrum orðum: í báðum tilvikum er um að ræða vel gert leikhús ef svo má að orði komast.

Hver þekkir ekki sögurnar af þeim Bakka­bræðrum, eða eins og þeir eru líka kallaðir, Bakka­flónum, og sögunum af því þegar faðir þeirra kallaði kútinn, þegar þeir báru inn ljósið í húsið glugga­lausa, Þegar þeir keyptu köttinn sem þeir svo drápu af ótta við að hann myndi éta þá alla, þegar þeir drápu hestinn Brúnku með því að hlaða grjóti á hana til að koma í veg fyrir að hún fyki í óveðrinu og þegar þeir óttuðust að ruglast á fótum sínum þegar þeir sátu með fæturna í lauginni ... Það má gera listann með bjálfa­legum og ánalegum uppá­tækjum þeirra Bakka­bræðra býsna langan.

Raunar eiga Bakka­bræður sér fleiri bræður – bæði hér á Íslandi og eins víðar um heim. Þær sögur sem Anna bergljót Thorarensen styðst við í sinni leikgerð og sem Leik­hópurinn Lotta styðst við í sýningu sinni eru Bakka­bræður frá bænum Bakka í Svarfaðardal, en þar bjuggu forðum – að því er sagan segir – þrír bræður sem þóttu hver öðrum heimskari, vissu sjaldnast hver þeirra væri hver og ávörpuðu sjálfa sig ávallt með hinni klassísku kveðju, „Gísli, Eiríkur Helgi“ og átu hana hver upp eftir öðrum. Þessir bræður voru einfaldir og auðtrúa og sögurnar um þá byggja allar á þessum einkennum.

Hins vegar voru einnig til bræður á bænum Bakka í Fljótum. Þeir voru fjórir, hétu Eiríkur, Þorsteinn, Gísli og Jón og eru taldir hafa búið í Fljótunum um 1600. Einn þessara bræðra var giftur og hét kona hans Gróa og var kölluð Gróa einsýna af því hún var eineygð. Reyndar kemur Gróa fyrir í leikverki Önnu Berg­ljótar, en Gróa sú er læknir og býr á Leiti og við hana eru kenndar gróusögur. Það er ákaflega vel til fundið af Önnu Bergljótu að tengja Gróu á Leiti við Bakkabræðra­minnið eins og hún vinnur úr því, en ég vík að því betur síðar.

Bakka­bræður í Fljótum eru þekktir fyrir álíka aulaskap og kjánaskap og frændur þeirra úr Svarfaðardal, en sennilega hafa þeir þríbræður orðið þekktari vegna þess að talan þrír á sér langa og gróna hefð í sagna­mennsku og svo hugsanlega einnig vegna hins, að örlög þeirra fjór­bræðra eru öllu harm­þrungnari en þríbræðranna úr Svarfaðardal, þannig að almenningi hefur sennilega þótt auðveldara að hlæja að bræðrunum úr Svarfaðardal.

Bakka­bræður eiga sér einnig skyldmenni erlendis og liggur þá beinast við að nefna Molbúana í Danmörku, enda hafa þær sögur átt auðvelt með að rata til Íslands sakir langtíma menningar­tengsla Íslands og Danmerkur. Molbúar munu einnig hafa verið hafðir að skotspæni í Noregi, enda heyrði Noregur undir Danmörku þegar Molbúa­sögurnar kviknuðu til lífs með útgáfu bókarinnar „Beretning om de vidtbekiendte Molboers vise Gierninger og tapre Bedrifter“ árið 1771, en þar mátti finna 13 molbúa­sögur, hverri annarri kostulegri. Molbúar búa í Mols á Suður-Jótlandi og voru löngum sagðar sögur um þá af svipuðu tagi og um Bakka­bræður og má finna margar sögurnar lítt breyttar beggja vegna Atlantshafs; þá má finna svipaðar sögur um svokallaða „Täljetokar“, sem bjuggu í bænum Södertälje nokkru sunnan Stokk­hólmsborgar í Svíþjóð en sögurnar um Täljetokar fóru á flug eftir að byggt hafði verið geðsjúkrahús í Södertälje. Það má þannig leiða að því nokkur rök að sögurnar um Bakka­bræður, hvort sem er úr Svarfaðardal eða Fljótum, Molbúa og Täljetokar eiga rætur að rekja til ótta okkar við hið óþekkta, hið afbrigði­lega og hið framandi.

Afrek Bakka­bræðra eru vandlega skjalfest í Þjóðsögum Jóns Árnasonar og hafa lifað góðu lífi meðal okkar Íslendinga uppfrá því. Jóhannes úr Kötlum gerði um þá frægt kvæði sem kom út 1941. Árið 1951 fram­leiddi einn af frumkvöðlum íslenskrar kvik­myndagerðar, Óskar Gíslason, myndina „Reykja­víkur­ævintýri Bakka­bræðra“, í leik­stjórn Ævars R. Kvarans en handrit gerði Loftur Guðmundsson. Þá las Sigurður Sigurjónsson, leikari sögurnar um Bakka­bræður árið 1983 inn á hljóm­plötu. En fljótlega eftir það hurfu þeir Bakka­bræður af sjónar­sviðinu og við hlutverki aulabárð­anna, „hinna“, tóku Hafnfirðingar og áður en nokkur gat rönd við reist urðu Hafnfirðinga­brandarar móðins, rétt eins og sögur af Norð­mönnum tóku við af sögunum af „Täljetokarna“ í Svíþjóð.

Við virðumst sem sagt hafa þessa þörf fyrir að gera grín að og hlæja að náunganum, spotta hann og lítil­lækka. Rótgróið í menningunni, myndi einhver segja og í raun bara græsku­laust gaman. En er það svo? Er þetta ekki frekar neikvæður menningar­arfur (ef tala má um „menningu“ í þessu samhengi – það er ekki alveg óumdeilt hugtak í þessu samhengi – en hins vegar mun óumdeilt að atferlið fer hindrunar­lítið frá einni kynslóð til annarrar)? Þessi söguhefð hallar sér að þörfinni fyrir að skilgreina „okkur“ frá „hinum“ og „við“ erum þá „góða fólkið“, sem teljum „okkur góða fólkið“ yfir þá hafna sem eru „öðruvísi“ og þar með „hinir“ (afsakið allar gæsa­lappirnar, lesendur góðir, en hér er verið að nota hversdagsleg orð yfir það sem kalla má félagsleg fyrirbæri og lýtur að því hvort samfélag okkar er „gott“ eða „vont“ öllum sem það byggja, eða bara sumum!) Það má minna á, að um miðja síðustu öld voru svipaðir „brandarar“ sagðir um gyðinga og í Banda­ríkjunum hefur mátt heyra álíka „gamanmál“ sögð um blökku­menn. Og það þarf ekki einu sinni að nefna kven­fyrirlitninguna sem birtist í ljósku­bröndurum og svokölluðum skemmtisögum af eigin­konum og tann­hvössum tengda­mömmum og öðrum slíkum „kjellíngum“.

Leik­hópurinn Lotta hefur orðstír fyrir að vera gömlum, viðteknum og íhalds­sömum viðhorfum ljár í þúfu. Í verkum sínum hefur hópurinn einatt tekist á við þessi viðhorf, og tekið hiklausa afstöðu gegn þeim. Og það er vel – leikhús á að ögra, leikhús á að gefa áhorf­endum sínum færi á að þokast áleiðis í átt til betra samfélags, sem skapað verður af betri manneskjum. Og í sögunni um Bakka­bræður tekst höfundinum, Önnu Bergljótu svo sannarlega að snúa upp á sögu­hefðina um Bakka­bræður svo bragð verði að. Í sýningunni allri, leik­stjórn Þórunnar Lárusdóttur, dans­hreyfingum Viktoríu Sigurðar­dóttur, tónlist þeirra Baldurs Ragnars­sonar, Rósu Ásgeirs­dóttur og Þórðar Gunnars Þorvalds­sonar er tekist á við þessi viðhorf og grunn­hugmynd sýningarinnar studd og rökstudd: að allir menn eru jafnir – og enginn á að vera jafnari en annar!

Sýningin um þá Bakka­bræður í meðförum Leik­hópsins Lottu byggir á Svarfdælings­sögunum (og Gróa kemur þar fyrir sem læknir og helsti gróusögu­berinn einnig og þannig sett í kórrétt samhengi), en sagan sett í ramma þar sem óðals­bóndi nokkur (Sigsteinn Sigur­bergsson) segir dóttur sinni, Lilju (Viktoría Sigurðar­dóttir) sögur af þeim bræðrum og bjálfum og markmiðið er vitanlega að skemmta sér og henni á sögum af afkára­skap þeirra og heimsku – styrkja og efla hugsunina um muninn á „okkur“ og „þeim, hinum“.

Sögurnar lifna við og bræðurnir og foreldrar þeirra birtast Lilju og þá gerist það sem þurrkar út mörk og mæri milli „okkar“ og „hinna“ – Lilja kynnist þeim bræðrum, lærir að það er munur á þeim Gísla, Eiríki og Helga og að sögurnar, sem af þeim eru sagðar eru ekkert nema gróusögur – eða eins og við myndum orða það á okkar nútíma­máli: fake news!

Þetta er snilldarleg vending á Bakkabræðra­hefðinni og hæfir nútímanum að öllu leyti – enda varð ekki annað fundið á frum­sýningunni á Lottutúni en fjölmennur áhorfenda­skarinn, misjafn að aldri, tæki þessum boðskap vel. Honum var líka svo snyrti­lega og fagmannlega komið fyrir í fjörugri sýningu þar sem fjörleg tónlist, glaðlegar dans­hreyfingar og hraðar og snjallar skiptingar milli atriða héldu athygli áhorfenda og miðluðu boðskapnum, að slúður um náungann er aldrei satt.

Í sýningum Leik­hópsins Lottu fer allt vel að lokum. Þegar áhorf­endur rísa úr sætum – eða upp af teppum sínum og upp úr garðstólum, því hér koma áhorf­endur með sín eigin sæti! – er heimurinn orðinn ívið betri og við öll ívið betri manneskjur. Það gildir líka um Bakka­bræður – þeir hafa í sögulok öðlast sess á borð við aðra í samfélaginu og jafn­réttið hrósar sigri.

Sýningar Leik­hópsins Lottu eru fjörlegar, skemmtilegar og vel gerðar. Atburða­rásin er hröð og sögur Lottu hafa jákvæðan boðskap fram að færa. Það eitt og sér er ærin ástæða til að hvetja alla sem vettlingi geta valdið að fjölmenna á Lottutún í Elliða­árdal – eða hvar sem Lotta ákveður að reisa leikmynd sína og hefja sýningu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár