Málefni Seðlabankans færð úr ráðuneyti Benedikts – verða áfram hjá Bjarna

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, mun ekki fara með málefni Seðla­bankans í nýrri ríkis­stjórn þrátt fyrir að hann gegni embætti fjármála- og efnahags­ráðherra. Í kosninga­baráttu sinni lagði Viðreisn mikla áherslu á mynt- og peningamál og annað sem varðar Seðla­bankann.

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, mun ekki fara með málefni Seðla­bankans í nýrri ríkis­stjórn þrátt fyrir að gegna embætti fjármála- og efnahags­ráðherra. Samkvæmt forseta­úrskurði sem kveðinn var upp í dag færast málefni Seðla­banka Íslands frá fjármála- og efnahags­ráðuneytinu og yfir til forsætis­ráðuneytisins. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins og forsætis­ráðherra nýrrar ríkis­stjórnar mun því áfram hafa þau málefni á sinni könnu. 

Í kosninga­baráttu sinni lagði Viðreisn mikla áherslu á mynt- og peningamál og annað sem varðar Seðla­bankann með beinum hætti. Samkvæmt forseta­úrskurðinum virðist ný ríkis­stjórn hafa komið sér saman um að Sjálfstæðis­flokkurinn fari með þann málaflokk en ekki Viðreisn. 

Í efnahags­stefnu Viðreisnar er boðað að stofnað verði myntráð og horfið frá núverandi peninga­stefnu. „Tekið verði upp myntráð í stað núverandi peninga­stefnu, hliðstætt því sem tíðkast í fjölmörgum smærri ríkjum. Upptaka myntráðs mun skapa varanlegan gengis­stöðugleika, draga verulega úr vaxtamun við útlönd og skapa forsendur lang­varandi verð­stöðugleika, til hagsbóta fyrir almenning jafnt sem atvinnulíf,“ segir í stefnunni. 

Í stefnu­yfirlýsingu nýrrar ríkis­stjórnar er engu slegið föstu um stofnun myntráðs en fyrirheit gefin um að forsendur peninga- og gjaldmiðils­stefnu Íslands verði endur­metnar og málið sett í nefnd. „Ráðherranefnd mun hafa samráð við þing­flokka og starfa náið með Seðla­banka Íslands, aðilum vinnu­markaðarins og utan­aðkomandi sérfræðingum, eftir atvikum á vettvangi Þjóðhagsráðs. Byggt verður á niðurstöðum skýrslu Seðla­banka Íslands frá árinu 2012 um valkosti Íslands í gjald­miðils- og gengismálum. Þar var meðal annars lagt mat á framkvæmd verðbólgumarkmiðs, myntráð, fastgengis­stefnu og ýmsa aðra kosti. Niðurstöður vinnunnar liggi fyrir á fyrsta starfsári,“ segir í stjórnar­sáttmálanum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár