Flytjum mun meira inn en út

Halli á vöru­viðskiptum við útlönd á tíma­bilinu nam 89,6 milljörðum króna.

Ferðamenn
Ferða­menn Vegna þeirra styrk­ist krónan. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vöruskipta­jöfnuður var jákvæður í kjölfar efnahags­hrunsins, þegar einka­neysla og fjár­festingar duttu niður. Nú er hann aftur orðinn neikvæður, sem stað­festir að Ísland er í uppsveiflu. Á fyrstu níu mánuðum ársins var tæplega 90 milljarða halli á vöru­skiptum við útlönd en alls voru fluttar út vörur fyrir 405,7 milljarða króna en inn fyrir 495,3 milljarða. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hagstofunnar. Innflutningur á hrá- og rekstrar­vörum og eldsneyti dróst töluvert saman en á móti jókst innflutningur á fjár­festinga­vörum og flutninga­tækjum til muna. Til að mynda jókst innflutningur fólksbíla um 38 prósent, flugvéla um 42 prósent og innflutningur flutninga­tækja til atvinnu­rekstrar, annarra en flugvéla og skipa, um 55 prósent.

Í takti við hagsögu Íslands

Ásgeir Jónsson, forseti Hagfræði­deildar Háskóla Íslands, segir að þetta séu allt dæmigerð einkenni íslenskrar uppsveiflu.

 

„Ísland er afar opið hagkerfi og við flytjum inn nær allar varanlegar neyslu­vörur og fjár­festingar­vörur sem við þurfum. Það þýðir að um leið og innlend eftir­spurn og fjár­festing tekur við sér eykst innflutningur. Þannig hafa uppsveiflur yfirleitt alltaf leitt til halla á vöru­skiptum en viðskipta­afgangur birtist við niður­sveiflu, líkt og eftir hrun þar sem mjög dró bæði úr fjár­festingu og innlendri eftir­spurn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár