Sjúkrahúsþjónusta mun dýrari hérlendis en í Evrópusambandinu

Íslendingar þurfa að borga mun meira fyrir sjúkrahús­þjónustu en íbúar Evrópu­sambands­landa, jafnvel þótt tekið sé tillit til hærri kaup­máttar hérlendis. Hins vegar er hiti, rafmagn og hugbúnaður ódýrari hér.

Það er mun kostnaðarsamara að leggjast inn á sjúkrahús hérlendis heldur en í Evrópusambandinu.
Það er mun kostn­að­ar­sam­ara að leggj­ast inn á sjúkra­hús hér­lendis heldur en í Evr­ópu­sam­band­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heilbrigðis­þjónusta, og sérstak­lega sjúkrahús­þjónusta, er mun dýrari hérlendis en í öllum aðildar­ríkjum Evrópu­sambandsins þegar tekið er tillit til mismun­andi kaup­máttar á milli landa. Þetta kemur fram í nýuppfærðum tölum á vef Hagstofu um alþjóð­legan verð­samanburð.

Í tölunum kemur fram saman­burður á verði ýmissar þjónustu á milli Evrópu­landa, þar sem verðið ýmsum vöru- og þjónustu­flokkum er borið saman við meðaltal Evrópu­sambands­landa. Samkvæmt þeim er verðlag hærra í flestum flokkum hérlendis, en Íslendingar verja tæplega helmingi hærra hlutfalli af tekjum sínum í neyslu­útgjöld heldur en íbúar í aðildar­ríkjum Evrópu­sambandsins.

Mestur er munurinn á verð­laginu í sjúkrahús­þjónustu, sem Íslendingar verja 2,5 sinnum meira en íbúar Evrópu­sambands­landa að meðaltali, þegar tekið er tillit til mismun­andi kaup­máttar á milli landa. Þetta er næsthæsta verðið á þjónustunni í öllum þeim 37 Evrópu­löndum sem Hagstofan mælir, en hún er einungis dýrari í Sviss.

Líkt og sést á mynd hér að ofan er verðið á þjónustunni fjórðungi hærra en í Noregi, helmingi hærra en í Svíþjóð og 70 prósentum hærra en í Danmörku. Munurinn er svipaður ef heildar­útgjöld í heilbrigðis­þjónustu eru skoðuð, en í þeim flokki er Ísland dýrast allra Norður­landa og næst­dýrast í Evrópu, á eftir Sviss.

Rafmagn, hiti og hugbúnaður ódýr

Tvenns konar neyslu­vörur er aftur á móti ódýrari hérlendis heldur en í Evrópu­sambandinu, en það er annars vegar rafmagn og hiti og hins vegar hugbúnaður. Verðið á rafmagni og hita var þriðjungi lægra hérlendis heldur en að meðaltali í Evrópu­sambandinu í fyrra, en þó ekki jafnlaágt og í Noregi, þar sem rafmagn var helmingi ódýrara en í aðildar­ríkjum sambandsins.

Sömu sögu er að segja um hugbúnað, sem var rúmum 10 prósentum lægra hérlendis en í öðrum Evrópu­sambands­löndum, en samkvæmt saman­burði Hagstofu var hugbúnaður hvergi ódýrari heldur en hér, þegar tekið er tillit til kaup­máttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár