Öll viljum við vera alvöru!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um sýninguna Gosi – ævintýri spýtu­stráks sem sýnd er í Borgar­leikhúsinu.

Gosi – ævintýri spýtustráks
Gosi – ævin­týri spýtu­stráks Mynd: Borgarleikhúsið

Borgarleikhúsið: Gosi – ævintýri spýtustráks

Höfundur: Carlo Collodi

Leikgerð: Ágústa Skúla­dóttir, Karl Ágúst Úlfsson og leik­hópurinn

Söng­textar: Karl Ágúst Úlfsson

Leik­stjórn: Ágústa Skúla­dóttir

Leikmynd og búningar: Þórunn María Jóns­dóttir

Lýsing: Þórður Orri Pétursson

Tónlist: Eiríkur Stephensen og Eyvindur Karlsson

Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson

Leikgervi: Þórunn María Jóns­dóttir og Guðbjörg Ívars­dóttir

Grímugerð: Elín S. Gísla­dóttir

Myndband: Elmar Þórarinsson

Leikarar og tónlistar­fólk: Árni Þór Lárusson, Halldór Gylfason, Katla Margrét Þorgeirs­dóttir, Eiríkur Stephensen, Eyvindur Karlsson.

Mikið var nú gaman að koma aftur í leikhúsið eftir samkomu­bann sem virðist hafa verið lengra en leggjandi er á nokkra sál. Stemningin í fordyri Borgar­leikhússins áður en sest var inn í sóttvarnar­hólfaðan stóra sal þess til að horfa á ævintýrið um spýtu­drenginn Gosa gaf tóninn, aragrúi barna eftir­væntingar­fullur og spenntur og foreldrar ekki síður. Það er sannarlega ástæða til að færa þakkir leikhúsum og leikhús­listamönnum öllum þakkir fyrir að hafa staðið af sér biðina með okkur áhorf­endum og óskandi að ekkert verði nú til að spilla þróuninni til hins eðlilega horfs, þegar við getum setið saman og notið frásagna mannkyns af stórum og smáum leik­sviðum þessa heims.

Ævintýrið um Gosa þarf tæpast að kynna fyrir neinum, það er fyrir löngu orðið hluti af okkar vestrænu menningu, hluti af hennar birtingar­mynd – sagan af spýtu­drengnum sem vildi verða alvöru drengur, en hans stutta nef lengdist á í hvert sinn sem hann fór með ósatt orð. Þessi grundvallar­atriði í sögunni um Gosa – lífs­löngunin og afleiðingar lyginnar – hafa allt sem þarf til að vekja hugarflug lesenda, áheyrenda og áhorfenda og ber öll einkenni góðs ævintýris og góðrar fantasíu. Margt í sögunni um Gosa er í ætt við súrrealisma – hann lendir í klóm ræningjanna Refs og Kattar, sem tæla hann í Sirkus og þar breytist hann í asna. Það er því ekki að undra að sagan vakti athygli og hrifningu kvikmyndar­gerðar­mannsins Disney í Banda­ríkjunum, sem gerði eina af sínum margfrægu teiknimyndum um Gosa og það er nú sennilega í þeirri mynd sem flest okkar þekkja hann best. Það voru þó fleiri, sem spreyttu sig á að lífga Gosa við á hvíta tjaldinu; fyrsta kvik­myndin sem byggð var á ævintýrinu um Gosa var ítölsk þögul mynd, frumsýnd 1911.

Það er vert að huga að því, að höfundur sögunnar um Gosa, ítalinn Carlo Collodi, gerði hreint ekki lítið úr neikvæðum skapgerðar­einkennum Gosa. Ekki einasta er hann hneigður að lyginni, sem gerir að verkum að nefið vex, hann er líka hrekkjóttur, illkvittinn, kærulaus, dómgreindar­laus, vesæll og latur. Hann er eins langt frá því að vera sá sjarmerandi og heillandi spýturdrengur sem Disney sagði síðar frá. Markmið Carlo Collodis var að Gosi skyldi vera víti til varnaðar – sagan kemur út 1883 og það er á þeim tíma sem hinn vestræni heimur er að uppgötva bernskuna og byrjar að hlúa að þeirri skoðun að börn séu eins konar „tabula rasa“, autt blað, sem máli skiptir að fylla góðum gildum svo þau vaxi upp og verði nýtir þjóðfélags­þegnar. Carlo Collodi leit á söguna um Gosa sem harmleik og í upphaf­legu gerðinni var Gosi meira að segja beinlínis tekinn af lífi, sem var refsingin fyrir hans illu og andfélagslegu hegðun.

Það gekk auðvitað ekki, Gosa var þegar til kom hlíft við ömurlegum dauða en hins vegar var hann látinn sjá að sér. Gosi snerist til betri vegar, bjargaði föður sínum úr maga hund­fisksins (hvalsins), gerðist góður og gekk í skóla til að menntast og verða að menningar­veru. Þar með öðlaðist sagan líka þann eigin­leika, sem hentar svo vel fyrir leikhúsið og frásagnar­tækni þess – „katharsis“ er hugtak jafn­gamalt vestrænni leikhús­hefð, er frá Aristótelesi komið og þýðir „hugarfars­hreinsun“ sem merkir að sögu­hetjan skilur að hún hafi verið á villu­vegum en lærir að breyta rétt fyrir rás atburða. Hugarfars­hreinsun aðal­hetjunnar verður okkur áhorf­endum hvatning til að breyta eins, láta af ósiðum og gerast þau hin góðu börn sem samfélagið vill og þarfnast.

Höfundar leik­gerðarinnar, þau Karl Ágúst Úlfsson, Ágústa Skúla­dóttir og leik­hópurinn, fylgja þeirri línu nokkuð samvisku­samlega. Það er að vísu frekar lítið gert úr vondum eigin­leikum Gosa og þeir afsakaðir einna helst með ungæði og fákunnáttu – það fylgir Gosa frá upphafi að þótt hann breyti rangt, þá er það fyrir klaufa­skap og að nú þurfi hann bara að fara sinn veg niður til heljar og upp aftur til að verða góður. Sympatískur er hann frá upphafi. Í leik­gerðinni er því farinn vegur á milli hins upphaf­lega Gosa Collodis og Gosa Disneys og sem liggur kannski heldur nær Disney, ekki síst vegna þess að Gosi blessaður gerir sér á köflum grein fyrir því hversu illa hann breytir og brestur þá út í sjálfs­ásakanir, sem ungir áhorf­endur þekkja eflaust úr borgara­legu uppeldi nútímans. Það er auðvitað val leikgerðar­höfunda að fara þessa leið og hún gengur að öllu leyti upp í leik­gerðinni; mig langar hins vegar til að velta upp þeirri spurningu hvort hefði hugsanlega verið ástæða til að ganga lengra.

Fyrir nokkrum árum kom út skáldsaga, sem sækir innblástur í ævintýrið um Gosa og tekur fyrst og fremst á tilhneigingu hans til að ljúga. Sagan heitir „Splintered: A Political Fairy Tale“ og er eftir Thomas London. Sú saga segir frá Gosa, sem var einu sinni alvöru drengur sem gat ekki sagt ósatt orð – en umbreyttist í stjórn­málamann sem getur ekki haldið sig við sann­leikann. Þetta er ekki sagt hér til að láta í ljósi ónægju með þá leið að segja frá Gosa sem valin er í sýningu Karls Ágústs, Ágústu og leik­hópsins. En þessu er skotið að til gamans til að benda á að enn er ekki búið að skapa síðasta afbrigðið af Gosa – hann er og verður hluti af okkar menningu og mun um verða viðfangs­efni rithöfunda, kvikmynda­gerðarmanna og leikhús­listamanna um mörg ókomin ár – okkur lesendum og áhorf­endum til enda­lausrar ánægju.

Gosi á stóra sviði Borgar­leikhússins er afskaplega vel unnin, vönduð og falleg sýning. Leik­hópurinn er ekki nema fimm manns og sér bæði um leik og hljóðfæra­slátt og er hvort tveggja af fjöl­breyttu tagi. Leik­hópurinn er á heildina litið einvalalið og þarf ekki að fara um það mörgum orðum. Árni Þór Lárusson er nýr í hlutverki Gosa og mun leika það til skiptis við Harald Ara Stef­ánsson, sem var í upphaf­lega leik­hópnum. Árni Þór skilar hlut­verkinu með prýði, tengir vel við áhorf­endur og nær að halda því jafnvægi sem þarf milli hins hrekkjótta og dómgreindar­lausa Gosa og þess Gosa sem lærir á endanum af mistökum sínum og sameinast föður sínum í lokin. Hlut­verkin eru mörg og hlut­verkaskipti hröð, tengingar milli talaðs máls, söngs og hljóðfæra­leiks eru lipur og frásögnin öll fjörleg og kraft­mikil.

Leik­myndin nýtir stóra sviðið vel með mismun­andi svæðum og hæðum og baktjaldið er hugvit­samlega hannað og þjónar bæði sem mynda­tjald þar sem birtast myndir sem segja hvort við séum stödd í bænum hans Gosa eða inni í hund­fiskinum þar sem þeir lenda, Gosi og Jafet faðir hans. Þá eru skemmtilegar innkomur og útgöngur um baktjaldið sem efla ævintýrablæ sýningarinnar. Þá er ástæða til að nefna hugvit­samlega búninga og frábær gervi og grímur sem tengja við ítalskan uppruna sögunnar og gleður svo sannarlega augað.

Tónlistin byggir á áheyrilegum megin­stefjum og fleytir sýningunni vel áfram, gleður eyrað og ásamt marg­víslegum hljóð­brögðum lífgar og eflir töfra leik­hússins – því það er aðals og einkennis­merki Gosa á stóra sviði Borgar­leikhússins, að hér er treyst á þá töfra til fulls – og einfaldast er að bregða sér á Gosa og sann­færast af eigin raun.

Að endingu skal Borgar­leikhúsinu hrósað fyrir vandaða og vel unna leikskrá, þar sem ungir áhorf­endur fá skemmtilegan minjagrip með sér heim. Í leikskránni er ekki einasta að finna hefð­bundnar upplýsingar um sýninguna, heldur er sögu­þráður sýningarinnar rakinn, söng­textar birtir og svo eru teikningar sem má lita að eigin vild og vali. Slíkt er til fyrir­myndar og ber að þakka fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár