Vilja hætta athugun á hæfi Kristjáns Þórs vegna stöðu hans gagnvart Samherja

Meirihluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar telur að Kristján Þór Júlíusson, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, hafi engra hagsmuna að gæta af Samherja eða tengdum félögum í skilningi stjórnsýslu­laga.

Kristján Þór Júlíusson er sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son er sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Meirihluti stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar vill hætta frumkvæðis­athugun á hæfi Kristjáns Þórs Júlíusson, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, vegna stöðu hans gagnvart Samherja. Þessi afstaða hafi komið fram á fundi sem fram fór á föstudag. Frá þessu greinir Þórhildur Sunna Ævars­dóttir, formaður nefndarinnar, í stöðu­uppfærslu á Facebook.

Hún var ein þriggja þingmanna í nefndinni sem lögðu til að athugunin yrði hafin. Hinir tveir voru Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, og Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingar. Ákvörðun um að hætta frumkvæðis­athuguninni er þvert á vilja þremenninganna.

Þórhildur Sunna segir að afstaða meirihlutans hafi komið fram í bókun fram­sögumanns málsins, Líneik Önnu Sævars­dóttur. Þar hafi meðal annars sagt: „Sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra hefur engra hagsmuna að gæta af Samherja eða tengdum félögum í skilningi stjórnsýslu­laga, hvorki fjárhagslegra né persónulegra. Samkvæmt lögum metur ráðherra hæfi sitt sjálfur og ekkert hefur komið fram um að framkvæmd eða verklag á því mati hafi farið í bága við lög og reglur.[...]Ég tel frekari könnun tilgangs­lausa og tel ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessa frumkvæðis­athugun innan stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar.“

Í bókun þremenninganna sem lögðu athugunina til segir meðal annars:„Afstaða meiri hlutans ber merki um vanvirðingu fyrir réttindum og hlutverki minni hlutans á þingi, ýtir undir grun­semdir um samtryggingu og leyndar­hyggju, lítilsvirðir sérstakt eftirlits­hlutverk stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar og er til þess fallin að veikja Alþingi og traust almennings á því.“

Ráðist í athugun eftir opinberun á Samherjamálinu

Nefndin réðst í frum­kvæð­is­at­hugun á hæfi Krist­jáns Þórs í ljósi tengsla hans við Sam­herj­a í desember í fyrra, eftir að umfjöllun Kveiks, Stundarinnar og Wikileaks hafði leitt í ljós meintar múturgreiðslur, peninga­þvætti og skatta­sniðgöngu fyrir­tækisins í tengslum við veiðar þess í Namibíu.

Ráð­herr­ann hafði sjálfur lýst því yfir í stöðu­upp­færslu á Facebook í des­em­ber 2017, eftir að gagn­rýni kom fram vegna tengsla hans við Sam­herja og áratuga­vináttu við Þor­stein Má Bald­vins­son, for­stjóra og einn aðal­eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins, að hann myndi meta hæfi sitt í málum sem vörð­uðu fyr­ir­tækið „líkt og allir stjórn­­­mála­­menn þurfa að gera þegar fjöl­­skyld­u-, vina- og kunn­ingja­­tengsl gætu haft áhrif á afstöðu til ein­stakra mála“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár