71 prósent Íslendinga með Costco-kort

Íslendingar virðast hafa slegið heimsmet í aðild að Costco. Gera má ráð fyrir því að Costco hagnist um meira en hálfan milljarð króna á ári af íslenskum meðlima­kortum.

71 prósent Íslendinga eru með kort í Costco, samkvæmt nýrri könnun MMR.

Um 80 prósent Íslendinga á aldrinum 30 til 49 ára eru skráðir meðlimir hjá Costco, en kortið kostar 4.800 krónur á ári. 

Um 190 þúsund fjöl­skyldur og einstæðir einstaklingar eru á Íslandi og má því gera ráð fyrir að tekjur Costco af íslenskum meðlimum einum og sér sé um 650 milljónir króna á ári, út frá því að 135 þúsund fjöl­skyldur eða einstaklingar hafi aðildar­kort.

Tekjuháir eru mun líklegri en aðrir til þess að eiga kort í Costco. Þannig eiga aðeins 49 prósent þeirra sem hafa tekjur undir 250 þúsund slíkt kort, en 83 prósent þeirra sem hafa 800 þúsund krónur til eina milljón í mánaðar­tekjur.

Samkvæmt niður­stöðum könnunarinnar hyggjast 60 prósent Íslendinga endurnýja aðild sína að bandarísku stór­versluninni.

Líklegra er að íbúar á höfuð­borgar­svæðinu séu með Costco-kort. Aðeins 23 prósent þeirra eiga ekki kort í Costco. Þrátt fyrir fjar­lægðina frá versluninni eru 60 prósent íbúa á lands­byggðinni með kort í Costo.

Út frá stjórnmála­skoðunum er sá hópur sem helst á kort í Costco eru stuðnings­menn Miðflokksins, en 81 prósent þeirra eru meðlimir.

Stuðnings­fólk Vinstri grænna og Framsóknar­flokksins er ólíklegast til þess að vera með kort í Costco. 

Lýð­fræði­leg dreif­ingHelst eru það tekju­lágir sem eiga ekki kort í Costco.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár