Dagný og Henný aðstoða ríkisstjórnina

Dagný Jóns­dóttir, fyrr­verandi þingkona Framsóknar­flokksins, hefur verið ráðin aðstoðar­maður ríkis­stjórnarinnar um samhæfingu mála. Hagfræð­ing­urinn Henny Hinz mun áfram aðstoða stjórnina á sviði vinnu­markaðs-, efnahags- og loftslags­mála.

Stjórnarráð Íslands
Stjórn­ar­ráð Íslands Mynd: Bára Huld Beck

Dagný Jóns­dóttir hefur verið ráðin aðstoðar­maður ríkis­stjórnarinnar um samhæfingu mála, líkt og það er orðað í tilkynningu frá stjórnar­ráðinu. Þá mun Henný Hinz áfram gegna stöðu aðstoðar­manns ríkis­stjórnarinnar á sviði vinnu­markaðs-, efnahags- og loftslags­mála.

Í tilkynningu stjórn­valda segir að Dagný muni vinna að því að „samhæfa stefnu og aðgerðir í mála­flokkum sem heyra undir fleiri en eitt ráðuneyti. Meðal umfangs­mikilla áherslu­mála ríkis­stjórnarinnar sem snerta málefna­svið flestra ráðuneyta eru sjálfbærni, réttlát umskipti og aukin samkeppnis­hæfni“.

Dagný er með BA-próf í íslensku frá Háskóla Íslands en hún hefur síðastliðin fjögur ár starfað sem sérfræðingur á upplýsinga- og kynningar­sviði Kennara­sambands Íslands. Áður starfaði Dagný m.a. sem verkefnis­stjóri á kynningar- og markaðs­sviði Eimskips og sérfræðingur í markaðs­deild Arion banka. Þá var hún þingmaður Framsóknar­flokksins á árunum 2003-2007.

Henný Hinz hefur gegnt stöðu aðstoðar­manns ríkis­stjórnarinnar á sviði vinnu­markaðs-, efnahags- og loftslags­mála frá haustinu 2020. Áður starfaði Henný, sem er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, hjá Alþýðu­sambandi Íslands, þar af sem deildar­stjóri hagdeildar frá 2016.

Bergþóra Benedikts­dóttir og Lára Björg Björns­dóttir eru aðstoðar­menn forsætis­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár