Fölsuð vegabréf góð söluvara

Flótta­fólk frá Sýrlandi mætir meiri skilningi í Evrópu og á auðveldara með að fá landvistar­leyfi en flótta­fólk frá öðrum löndum. Þess vegna sækjast margir aðrir en Sýrlendingar eftir „heima­tilbúnum“ sýrlenskum vega­bréfum sem seljast eins og heitar lummur.

Það er eins konar lögmál að þar sem eftir­spurn er til staðar eru alltaf einhverjir sem koma auga á hagnaðar­vonina og nýta sér aðstæðurnar til að afla tekna. Það kemur þess vegna ekki á óvart að hugvits­samir menn hafi snúið sér að vegabréfa­framleiðslu. Með nútíma tækni þegar hægt er að gera eftir­líkingar af nánast hverju sem er verður flinku og áhugasömu fólki ekki skota­skuld úr slíku. Og eftir­spurnin er mikil þegar hundruð þúsunda flýja heimalönd sín í von um betra líf. Fölsuð vegabréf hafa verið í umferð víða um heim áratugum saman en kannski aldrei í sama mæli og nú.

Hægðarleikur ef þú getur borgað

Eftir því sem næst verður komist er vegabréfa­fram­leiðslan nú um stundir langmest í Tyrklandi, einkum í Istanbúl. Blaða­maður danska dagblaðsins Berlingske var nýlega þar á ferð og komst að því að það er hægðar­leikur að verða sér úti um vegabréf. Hann hitti þar nokkra „fram­leiðendur“ sem sögðust ekki anna eftir­spurninni. Allir sem vilja kaupa biðja um sýrlenskt vegabréf. Ástæðan er sú að með því að veifa sýrlenskum passa er leiðin áfram til Evrópu greiðari en fyrir flótta­fólk frá flestum öðrum löndum.


Blaða­maður Berlinske átti langt samtal við Ahmed, sýrlenskan mann sem býr í Istanbúl og fram­leiðir og selur fölsuð vegabréf í stórum stíl.


Ahmed sagðist hafa aðstoðað rúmlega tvö þúsund manns við að komast frá Tyrklandi og áfram norður eftir Evrópu. Að sögn hans eru aðeins tuttugu prósent þeirra sem segjast vera Sýrlendingar að segja satt, hinir eru frá ríkjum í Norður-Afríku, Tsjetsjeníu, Afganistan, Albaníu, Írak og fleiri löndum. Annar vegabréfa­fram­leiðandi taldi að Sýrlendingarnir væru nær fjörutíu prósentum. Algengt verð fyrir nýtt „sýrlenskt“ vegabréf samsvarar um það bil 150 þúsund íslenskum krónum. Þarna er þó ekki öll sagan sögð því þeir sem vilja komast norður á bóginn þurfa að borga fyrir­greiðslu­mönnum stórfé. Hluti þess rennur til lögreglu­þjóna, starfs­fólks við landamæra­vörslu og fleiri slíkra, sem í staðinn snúa blinda auganu að því sem fram fer. Þiggja með öðrum orðum mútur. Þeir sem eiga næga peninga geta líka keypt frönsk, þýsk, kanadísk eða bandarísk vegabréf. Þau eru allt að tífalt dýrari en þau sýrlensku enda gera þau alla hluti auðveldari að sögn.

Enginn veit fjöldann

Vegna allrar þeirrar ringul­reiðar sem skapast hefur af völdum flóttamanna­straumsins undan­farið er hægt að fullyrða að evrópsk lögregla og landamæra­verðir hafi ekki átt þess nokkurn kost að skoða, nema að mjög takmörkuðu leyti, vegabréf þess mikla fjölda sem um landa­mærin hafa farið. Enginn veit því með vissu hve margir þeir eru sem lagt hafa land undir fót (margir í bókstaflegri merkingu) síðustu vikur og mánuði og enn síður hvort allt það fólk er raun­verulega það sem vega­bréfið segir.

Tækjabúnaðurinn iðulega stolinn

Tyrkneskur blaða­maður sem býr og starfar í Istanbúl dulbjó sig sem sýrlenskan flótta­mann og fór svo á stúfana í þeim tilgangi að verða sér úti um finnskt vegabréf. Það reyndist ekki erfitt og eftir tvo daga var hann kominn með finnska vega­bréfið í hendur. Blaða­manninum tókst ennfremur að komast í kynni við íranskan mann sem vann við að útbúa vegabréf. Og hjá þessum Írana sá blaða­maðurinn tækin sem notuð eru við að útbúa vega­bréfin. Íraninn sagði honum að sum þeirra væru stolin en önnur hefðu hagleiks­menn smíðað. Hann sagði blaða­manninum jafnframt að ef hann hefði löglega útgefið vegabréf (masterpas) til að vinna eftir yrðu eftir­líkingarnar nákvæmleg eins. Blaða­manninum tókst hinsvegar ekki að komast að því hverjir stæðu á bak við fram­leiðsluna og hirða gróðann. Sem að mati blaða­mannsins er gríðar­legur. Frásögn blaða­mannsins birtist í tyrknesku dagblaði og vakti mikla athygli en lögreglan aðhafðist fátt. Framkvæmdi, að sögn blaða­mannsins, einhverja málamynda­rannsókn sem engu skilaði og sagði málinu lokið án niður­stöðu.

Dönsk vegabréf góð söluvara

En það er víðar en í Istanbúl sem markaður með fölsuð, eða stolin, vegabréf blómstrar. Skrifari þessa pistils las fyrir nokkru í Jótlands­póstinum langa umfjöllun um vega­bréfa­falsanir. Þar kom fram að árlega hverfa þúsundir danskra vegabréfa, sem enginn veit hvar lenda. Sumum er stolið, önnur týnast og enn önnur kannski seld. Dönsk vegabréf eru nefnilega góð söluvara og engin leið fyrir lögreglu að komast að því hvort sá sem tilkynnir horfið vegabréf hafi tapað því eða jafnvel selt það. Fyrir nokkrum árum fann danska lögreglan (eftir ábendingu) það sem yfirmaður í lögreglunni kallaði vegabréfa­verksmiðju. Þar voru hundruð vegabréfa sem lögreglan taldi augljóst að til stæði að selja. Þau voru að sögn svo vel gerð að nær engin leið var að sjá að þau væru ekki ekta. Skömmu síðar komst lögreglan á snoðir um aðra „verksmiðju“, þar voru búin til ökuskírteini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár