„Í þjóðinni býr náttúrulegur kraftur ...“ – YEAH!

Leiklistar­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um Independent Party People eftir Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson, Nína Hjálmars­dóttir og Selma Reynis­dóttir í Tjarnar­bíói.

Independent Party People
Independent Party People Mynd: Owen Fiene

Sálufélagar í Tjarnarbíói: Independent Party People

Höfundar og flytjendur: Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson, Nína Hjálmars­dóttir, Selma Reynis­dóttir.

Fram­leiðendur: Nína Hjálmars­dóttir, Selma Reynis­dóttir.

Sviðsmynd: Katerina Blahutová.

Dramatúrgisk aðstoð: Brogan Davison, Pétur Ármannsson.

Tónlist: Sigrún Jóns­dóttir.

Ljós: Aron Martin Ásgerðarson, Magnús Thorlacius.

Búningar: Tanja Huld Levý Guðmunds­dóttir.

Tjarnabíó er eins og flestum er kunnugt heima­völlur sjálf­stæðu leik­hópanna. Þar má einatt sjá verk sem enn er verið að þreifa sig áfram með efnistök og úrvinnslu og oftar en ekki eru viðfangs­efnin nýstárleg sem og efnis­tökin. Í Tjarnar­bíói verður aldrei gengið að neinu vísu og þess vegna er það spennandi leikhús. Rati þangað sem flestir!

Leikárið hefst á tilraun um ímynd Íslands og Íslendinga og það er svo sannarlega leikið með þá ímynd útfrá ýmsum sjónar­hornum. Þegar áhorf­endur ganga inn í sal Tjarnar­bíós mætir þeim leik­hópurinn sem ýmist situr eða liggur í makindum og sötrar rauðvín, íklæddur afkára­legum búningum sem vísa í þjóðleg gildi – lopa­peysan íslenska með sínu klassíska munstri – og partí­stemningu nútíma­fólks með litríkum pífum, blúndum og krögum en umgjörðin er hvítur bakveggur úr heyböggla­plasti og allt sem fyrir augu ber af leikmynda­tagi er gert úr plasti og það er vissulega ákveðin afstaða sem birtist í því. Lýsingin fylgir stemningu og stíl, afdráttar­laus og ótvíræð.

Í þessu ofurhvíta umhverfi spjallar leik­hópurinn saman og við áhorf­endur á afslappaðan og tilgerðar­lausan máta; í byrjun er samvera beggja, leikhóps og áhorfenda útskýrð útfrá tilgangi sýningarinnar og óborganlegar útskýringar á samsetningu leik­hópsins gefnar til að ekkert fari á milli mála og það er eins og að vera staddur í vinnu­smiðju þar sem verið er að undirbúa sýningu en ekki að sjá leik­sýningu flutta í rauntíma – þetta er leikur með tíma, afstöðu og umhverfi þar sem allt fléttast saman á fyndinn hátt og auðskiljanlegan.

Sviðslista­hópurinn Sálu­félagar samanstendur af stofn­endum hans, Nínu Hjálmars­dóttur, sem lauk prófi frá Fræði og framkvæmd braut Lista­háskóla Íslands, og Selmu Reynis­dóttur, dansara, og hér hafa þær sótt sér liðsauka í leikurunum Davíð Þór Katrínar­syni og Jónmund Grétars­syni. Sálu­félagarnir Nína og Selma hafa velt þema verksins fyrir sér í lengri tíma og lagst í allnokkra rannsóknar­vinnu til að kanna fyrir­bærið ímynd Íslands – upphaf­lega voru þær að skoða sjálfs­mynd Íslendinga sem og hvernig útlendingar hugsa um okkur Íslendinga og fundu útgangs­punkt í skrifum mann­fræðingsins Kristínar Lofts­dóttur sem hefur skoðað hugmyndina um Ísland sem hið framandi og spennandi norður. Og svo gaf Forsætis­ráðuneytið út skýrsluna Inspired by Iceland, sem hefst á orðunum: “Í þjóðinni býr náttúru­legur kraftur sem mótast hefur í sambúð við náttúruna”. Sem er nú meira miðflokks­bullið.

Vissulega er þetta kjörið rannsóknar­efni og snjallt að vinna úr því sýningu, sem brýtur gegn hinni venju­bundnu dramatúrgíu og verður að flæði hugmynda þar sem við, áhorf­endur, hættum að vera áhorf­endur og verðum frekar eins konar þátt­takendur – við finnum svo sannarlega fyrir því að þegar leik­hópurinn segir sig ekki geta samsamað sig í þessari opinberu Íslands­ímynd þá tökum við undir það, við skiljum rök þeirra og gerum þau að okkar rökum. Og förum að efast um hvað sé að vera Íslend­ingur.

Misskilji nú enginn orð mín sem svo að Independent Party People sé hamslaus og ruddaleg árás á ímyndar­smiði hins opinbera. Öðru nær. Hér er borin virðing fyrir efninu. En hér svo sannarlega skoðað og rannsakað, varpað fram eðlilegum og sjálfsögðum spurningum sem, þegar að er gáð, eru líka okkar spurningar.

Ísland er hvítt. Í öllum skilningi. Í ímynd Íslands er áherslan lögð á víkinginn, hvíta manninn, sem leggur undir sig landið, og það eru ansi margir sem fá hreinlega ekki pláss í þeirri ímynd. Þeirri opinberu. Þeirri viðurkenndu.

Leik­hópurinn sýnir þetta á sjálfum sér: Nína og Selma eru hvítar ungar konur, Davíð Þór og Jónmundur eru blakkir (já, eða brúnir) ungir karlar. Þau þurfa sjálf að berjast við ímyndar­hugtakið, þreifa á því, takast á við það og sigrast á því. Af því saga vor kúrir kvenmanns­laus í kulda og trekki – svo vísað sé til þekkts baráttu­söngs – og það þarf nú ekki að ræða blökku­mennina, sem á stríðs­árunum máttu ekki einu sinni vera hermenn í her Banda­ríkjanna samkvæmt leyni­samkomulagi ríkis­stjórna Íslands og Banda­ríkjanna. Og má ekki nefna hér olnboga­barn Íslendinga­sagna, Geirmund Heljar­skinn, son Hjörs og Ljúfvinu, en hann mun hafa erft mongólskt útlit móður sinnar og hefur búið við allnokkra þöggun síðan, en er nú að hljóta uppreisn æru með skáldsögu Bergsveins Birgis­sonar um svarta víkinginn.

Þessi tvö dæmi, hin kvenmanns­lausa saga vor og Geirmundur heljar­skinn, eru hér nefnd til að sýna fram á að Independent Party People þeirra Sálu­félaga hvílir síður en svo í hugmynda­fræðilegu tómarúmi – þetta finnur hver á sér sem vill og viðurkennir.

Sú ímynd, sem birt er af opinberum aðilum, og sem einhvers konar óútskýrð sátt ríkir um, er og verður ímynd sem hampar sumum á kostnað annarra. Og það verður ekki fyrr en það er viðurkennt og opnað fyrir að allir rúmist innan ímyndar, að tekið sé tillit til allra og mið af öllum, að við getum öll orðið besta útgáfan af sjálfum okkur. Einhvern veginn finnst þeim sem þetta skrifar að það sé niður­staðan þegar öllu er á botninn hvolft.

Það má svo ekki gleyma að nefna að sýningin er elskuleg. Hún kemur fallega við okkur áhorf­endur/þátt­takendur og gefur okkur mörg tækifæri til að staldra við og hugsa. En hún er líka fyndin og leik­hópurinn kann mjög vel að halda utan um húmorinn. Stundum er hann nefnilega beittasta vopnið þegar bent er á það sem betur má fara í samfélagi mannanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár