Bjarni hafði ekki áhuga á að tala um málefni aldraðra og öryrkja á gamlársdag

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði í Krydd­síld­inni að með kjara­bótum fyrir aldr­aða og öryrkja yrði gert betur við hópana en nokkru sinni hefur verið gert.

„Ég hef svo sem engan sér­stakan áhuga á að taka dag­inn í að ræða mál­efni aldr­aðra og öryrkja,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, eftir að vikið hafði verið að kjara­málum í umræðum í Krydd­síld­inni í dag. 

Bjarni lét orðin falla eftir að Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, höfðu gagn­rýnt stjórn­ar­meiri­hlut­ann fyrir að gera ekki nægi­lega vel við aldr­aða og öryrkja í fjár­lögum. Stjórn­ar­and­staðan beitti sér fyrir því á haust­þingi að elli- og örorku­líf­eyrir almanna­trygg­inga yrði lát­inn hækka aft­ur­virkt, líkt og lægstu laun á samn­ings­tíma kjara­samn­inga sem miða við 300 þús­und krónur á mán­aði. Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins lögð­ust gegn þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár