Mubarak látinn laus eftir sex ár í haldi

Fyrr­ver­andi for­seti Egypta­lands hefur verið lát­inn laus eftir að hafa verið sýkn­aður af ákærum um spill­ingu og morð.

Réttað hefur verið yfir Hosni Mubarak í á fjórða ár.
Réttað hefur verið yfir Hosni Mubarak í á fjórða ár. Mynd: EPA

Hosni Mubarak, fyrr­ver­andi for­seti Egypta­lands, hefur verið lát­inn laus eftir að hafa verið í haldi stjórn­valda í sex ár. Honum var steypt af stóli í febr­úar 2011, í mót­mæla­öld­unni sem oft er kölluð arab­íska vorið.

Lögmaður Mubaraks stað­festir þetta við Reuters-frétta­stof­una. For­set­inn fyrr­ver­andi hafði verið á spít­ala í Kaíró en er nú á heim­ili sínu í Heli­opolis, fínu hverfi í Kaíró. For­seta­höllin er einnig í Heli­opolis, en þar réð Mubarak ríkjum frá 1981 þar til í febr­úar 2011.

Mubarak var tek­inn höndum í apríl 2011, tveimur mán­uðum eftir að hafa látið af völdum, og hefur verið lát­inn dúsa í fang­elsi og á her­sjúkra­húsum síðan, undir strangri gæslu.

Hinn 88 ára gamli Mubarak var sýkn­aður af síð­ustu ákær­unum á hendur honum á síð­ustu vikum. Hann hafði verið sak­aður um að hafa beitt for­seta­valdi sínu til þess að láta myrða fólk í bylt­ing­unni árið 2011. Annars hefur hann verið kærður fyrir fjölda meintra glæpa, allt frá spill­ingu til morða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár