Mynd: EPA

Sýrland er í raun ekki lengur til

Fram að arab­íska vor­inu var Sýrland leið­in­lega, stöðuga ríkið í Mið­aust­ur­löndum. Þetta gíf­ur­lega sögu­ríka menn­ing­ar­land er ekki lengur til, og það er ekk­ert sem bendir til ann­ars en áfram­hald­andi stríðs, segir Magnús Þorkell Bern­harðs­son pró­fessor.

„Það er ekk­ert sem bendir til þess að þessu stríði muni ljúka á þessu ári eða á næstu árum. Það sem við sjáum fram á er í raun og veru óend­an­legt stríð á þessu svæði, af því að það er mjög fátt sem hvetur fólk til þess að semja um frið,“ sagði Magnús Þorkell Bern­harðs­son pró­fessor við Williams-háskóla í Banda­ríkj­unum undir lok fyr­ir­lest­urs síns um hags­muna­öflin í Sýrlandi, sem hann hélt í Háskóla Íslands í vik­unni. 

„Framundan er því miður áfram­hald­andi stríð, og það Sýrland sem við þekktum, það Sýrland sem var þetta gíf­ur­lega mik­il­væga menn­ing­ar­land, má kannski segja, að það er ekki lengur til.“

Var alltaf leiðinlega landið

Fram að arab­íska vor­inu árið 2011 var Sýrland mjög stöðugt og í raun og veru leið­in­legt ríki, sagði Magnús, og þess vegna er svo skrýtið hvernig fyrir því er komið. Stöð­ug­leik­inn og leið­indin voru aðdrátt­ar­aflið fyrir náms­menn eins og Magnús á þessum tíma, það gaf fólki mögu­leika á að kynn­ast landi og þjóð og ferð­ast um og læra arab­ísku.

Eftir fimm ár af blóð­ugri styrj­öld, þar sem hálf milljón manna hefur látið lífið og um helm­ingur allrar sýr­lensku þjóð­ar­innar hefur þurft að flýja heim­ili sín, stendur ekki eftir burð­ugt sam­fé­lag. Áður bjó í Sýrlandi sterk milli­stétt­ar­þjóð, segir Magnús Þorkell. Nú er staðan þannig að 80 pró­sent íbúa eru undir fátækt­ar­mörkum, og þar af búa 70 pró­sent við sára fátækt. Atvinnu­leysið er 60 pró­sent og helm­ingur barna gengur ekki í skóla. Lífslík­urnar hafa styst um 20 pró­sent á aðeins fimm árum og löngu horfnir sjúk­dómar eins og tauga­veiki, löm­un­ar­veiki og kól­era grass­era á nýjan leik. Almennt eru það þeir sem gátu það sem eru flúnir. Milli­stéttin og efri milli­stéttin, fólkið sem átti vega­bréf og hafði þekk­ingu, pen­inga og sam­bönd til að kom­ast burt.

Hinir, þeir fátæku, öldr­uðu og veiku, sitja hins vegar eftir.

Hvernig gerðist þetta?

Sögulega séð var Sýrland ekki talið sér­stak­lega mik­il­vægt land fram á 21. öld, og Vest­ur­lönd skiptu sér ekki svo mikið af því. Þar var ekki olía eða gas.

En af hverju braust út stríð? Fyrir því eru auð­vitað margar ástæður, sagði Magnús. Sú fyrsta, og sú sem við tölum ekki mjög mikið um, eru umhverf­is­á­stæður. Það voru miklir þurrkar sem leiddu til skorts á land­bún­að­ar­vörum á þessu svæði, og það leiddi til ólgu, sér­stak­lega meðal fólks í dreif­býli. „Innrásin í Írak 2003 og her­námið þar og óstöð­ug­leik­inn í Írak hefur haft gíf­ur­lega mikið að segja vegna þess að stríðið sem var háð í Írak hefur flust til Sýrlands,“ sagði Magnús einnig. Þeir sem börð­ust gegn her­námi Banda­ríkj­anna í Írak hafa nú farið og barist í Sýrlandi, til dæmis fyrr­ver­andi her­menn. Þeir telja stjórn­völd í Írak ekki lög­mæt og telja sig ekki hafa neina fram­tíð í Írak. „Þeir hafa tekið byssur íraska hers­ins og nota þær í Sýrlandi.“

Þriðja ástæðan eru etnískar deilur sem hafa auk­ist mjög á síð­ustu árum. Þar kemur inn í sam­keppni á milli stærstu þjóða súnníta, til dæmis Sádi-Arabíu, og stærstu þjóða sjíta eins og Íran. „Nú er komið ein­hvers konar kalt stríð eða valda­bar­átta milli þess­ara þjóða um hvert er vold­ug­asta ríkið á Mið­aust­ur­löndum, hver á að stjórna Persafló­anum, hver á að stjórna umferð­inni í Persafló­anum, og að ein­hverju leyti teng­ist stríðið í Sýrlandi þessum deilum líka.“

Svo má ekki gleyma arab­íska vor­inu. „Það bjugg­ust allir við að það væri bylgja fram­fara og nútím­ans og frjáls­lyndra afla.“ Það tókst sums staðar, en í ljós kom að sterkir leið­togar, og þeir sem höfðu völdin, voru ekki alveg til í að gefa upp völdin sín. „Sér­stak­lega kom það okkur á óvart að Bashar al-Assad, for­seti Sýrlands, skyldi bregð­ast svona ókvæða við.“

Assad og fjölskylda eins og þau birtust í Vogue.
Assad og fjöl­skylda eins og þau birt­ust í Vogue.

Bashar al-Assad átti aldrei að verða leið­togi Sýrlands, heldur átti eldri bróðir hans að taka við af föður þeirra, en sá lést í bílslysi. Því kom það í hlut Bashar, augn­læknis í Englandi, að taka við. „Við stóðum í þeirri mein­ingu að augn­lækn­ir­inn sjálfur myndi auð­velda Sýr­lend­ingum að sjá betur, og við töldum að þegar þetta arab­íska vor hófst að hann myndi bara taka millj­arð­ana sína og flytja til Dúbaí eða Sádí-Arabíu og búa í vellyst­ingum þar. Ekki standa í þessu ves­eni. En það kom okkur veru­lega á óvart að hann ákvað að nota þau völd og þær byssur og vopn sem honum stóð til boða og barð­ist vel og kröftu­lega gegn stjórn­ar­and­stæð­ingum.“

Eitt af því sem flækti málin, segir Magnús, er að það var ekki mikið um stjórn­mála­öfl sem voru reiðu­búin að taka við, og það var engin eig­in­leg stjórn­ar­and­staða þegar upp­reisnin hófst. Margir tóku stjórn­ar­and­stöð­unni fagn­andi en gerðu ekki grein­ar­mun á því hverja þeir voru að styðja. Án þess að vita það fóru ýmsir utan­að­kom­andi að styðja stjórn­ar­and­stöð­una með ráðum og dáð og pen­ingum og vopnum.

Einn þessi hópur er hið svo­kall­aða íslamska ríki, sem náði vegna stjórn­leys­is­ins og flók­innar land­fræði, tals­verðu land­svæði í aust­ur­hluta Sýrlands og vest­ur­hluta Íraks.

Fylkingar breytast daglega

Staðan er gíf­ur­lega flókin og á hverjum degi eru nýjar fylk­ingar að mynd­ast. Tyrkir byrj­uðu til dæmis á að vera á móti stjórn­völdum en hafa nú snú­ist í hálf­hring og styðja stjórn­völd. Með mik­illi ein­földun snýst stríðið ann­ars vegar milli Sýr­lands­stjórnar sem nýtur stuðn­ings Rúss­lands, Írans, Tyrk­lands og Hezbollah í Líbanon. Svo er það íslamska ríkið og svo aðrir upp­reisn­ar­menn sem njóta kannski stuðn­ings Banda­ríkj­anna, Kúrda, Katar, Ísrael og fleiri sem eru að reyna að berj­ast gegn for­set­anum.

Tyrkir, Rússar og Íranir eru mjög sér­stök heild og það er algjör­lega ný staða að þessi ríki skil­greini hags­muni sína saman. Það gera þeir af mis­mun­andi ástæðum, en Magnús Þorkell stað­næmd­ist sér­stak­lega við Tyrki og hvað í ósköp­unum vaki fyrir þeim. Líklegt er að stjórn­völd í Tyrk­landi vilji fá land­svæði þarna undir sína stjórn, bæði í Írak og Sýrlandi. Þeir vilja líka halda Kúrdum í skefjum.

Ríkin eru auð­vitað öll, eins og Magnús segir, að gæta að sínum eigin hags­munum. Þau eru ekki að skipta sér af Sýrlandi af því að þau séu svo góð. Þróunin sem orðið hefur í stríð­inu er að hluta til líka vegna þessa, vegna þess hversu margir aðilar koma inn í það með einum eða öðrum hætti.

Hefur sýnt vanmátt okkar

Vegna þess hversu flókin staðan er, hversu óstöðugt landið er, hversu veik­burða stjórn­völd eru og að upp­reisn­ar­hópar hafa tryggt stöðu sína er ekk­ert sem bendir til þess að stríð­inu ljúki í bráð, sagði Magnús. Fólk spái því jafn­vel að Sýrland verði ein­hvers konar Sómalía, þar sem vissu­lega séu stjórn­völd, en þau ráði í raun ekki land­inu. Því verði áfram­hald­andi ófriður og ójafn­vægi.

„Það sem Sýr­lands­stríðið núna hefur sýnt okkur er hvað við erum van­máttug og getum í raun og veru lítið gert. Hvað eðli stríðs hefur breyst mikið, hvað til­tölu­lega fámennur hópur manna með byssur getur eyði­lagt ótrú­lega mikið og hvað geta stór­veldin í raun gert?“ Þá hafi stríðið líka vakið upp spurn­ingar um hvort við séum að sjá fram á enda­lok mann­rétt­inda í Mið­aust­ur­löndum, þar sem ný og gömul stjórn­völd hafi það eitt að mark­miði að tryggja eigin völd. „Enginn er að tala um mann­rétt­indi þessa fólks og hvernig við eigum að bregð­ast við. Við erum algjör­lega van­máttug að bregð­ast við glæpum gegn mann­kyni í Mið­aust­ur­löndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár