Jón Ásgeir sakar Kolbein um „kranablaðamennsku“

Blaða­mennska Kolbeins er Jóni Ásgeiri ekki að skapi en hann gagnrýnir blaðamann Frétta­blaðsins harðlega í pistli á Vísi í dag.

Jón Ásgeir Jóhannesson svarar í dag gagnrýni sem birtist í dálknum Frá degi til dags í Frétta­blaðinu í gær. Í pistlinum sem birtist á Vísi í morgun sakar Jón Ásgeir sérstakan saksóknara aftur um lygar en fyrirsögn pistilsins er „Lygi saksóknara er kjarni málsins“. Þá sakar hann blaðamann Frétta­blaðsins um yfirborðs­blaða­mennsku.

Forsaga málsins er sú að á mánudag var birtur pistill eftir Jón Ásgeir í Frétta­blaðinu þar sem hann gagnrýndi dómstóla og sérstakan saksóknara vegna dómsmála sem voru höfðuð gegn honum.

Í gær gagnrýndi Kolbeinn Óttarsson Proppé, blaða­maður Frétta­blaðsins, pistil Jóns Ásgeirs og benti á rang­færslur í túlkun hans á niður­stöðu Hæstaréttar í Aurum-málinu.

Segir viðskipti sín klædd í glæpabúning

Í pistli sínum á mánudaginn vændi Jón Ásgeir sérstakan saksóknara um lygar. „Hæstiréttur ómerkti á miðvikudag sýknu héraðs­dóms í svokölluðu Aurum-máli, þar sem ég er ákærður sem hlut­deildar­maður í viðskiptum sem áttu sér stað vorið 2008. Um var að ræða fullkomlega eðlileg viðskipti sem embætti sérstaks saksóknara reynir að klæða í glæpa­búning,“ segir hann. „Það er skelfilegt að upplifa þá tilfinningu að Hæstiréttur haldi hlífiskildi yfir heiðar­legum embættis­manni en láti réttindi fjögurra einstaklinga lönd og leið.“

„Kolbeinn Óttarsson Proppe, blaða­maður Frétta­blaðsins og staksteina­höfundur Morgun­blaðsins féllu í djúpan pytt yfirborðs­blaða­mennsku í gær.“

Kolbeinn
Kolbeinn Gagnrýndi pistil Jóns Ásgeir og benti meðal annars á rang­færslur í túlkun Jóns Ásgeirs á niður­stöðum Hæstaréttar í Aurum-málinu.

Málað með hans eigin litum

Daginn eftir að pistillinn birtist skrifaði Kolbeinn Frá degi til dags í Frétta­blaðinu. Þar sagði hann að það væri skiljanlegt að maður sem hefur verið í dómsal í þrettán ár líti ekki hlut­lausum augum á dóms­kerfið.

„Jón Ásgeir rekur þar í nokkru máli hve trúverðugt það sé að sérstakur saksóknari hafi ekki vitað af því að einn meðdómara í héraðs­dómi, Sverrir, hafi verið bróðir eins sakborninga, Ólafs Ólafs­sonar. Ekki er annað að skilja á Jóni Ásgeiri en að þetta sé ástæðan fyrir því að Hæstiréttur vísar málinu aftur heim í hérað. „Af hverju er svona rugl í kerfinu tekið út á okkur sem vorum sýknaðir?“ spyr hann. 

„Þetta er allt gott og blessað, nema fyrir það smáatriði að Hæstiréttur byggði sína niður­stöðu ekki á skorti sérstaks saksóknara á ættfræði­þekkingu, heldur því að Sverrir Ólafsson úttalaði sig um embætti sérstakt saksóknara. Mögulega hentar sú mynd sem Jón Ásgeir málar upp honum og hans málstað betur en sú rétta, en hún er engu að síður röng, þótt hún sé máluð með hans eigin litum,“ skrifar Kolbeinn.

Frá degi til dags
Frá degi til dags Kolbeinn sagði meðal annars: „Enskur máls­háttur segir eitthvað á þá leið að ef það gengur eins og önd og hljómar eins og önd þá sé líklegast um önd að ræða. Þann ágæta málshátt má heimfæra á vænisýki.“

Gagnrýnir „kranablaðamennsku“

Nú í morgun er svo birt svar Jóns Ásgeir við þessum orðum Kolbeins, á Vísi. Þar segir Jón Ásgeir að yfirborðs­blaða­mennska sé oft ráðandi á Íslandi. „Yfirborðs­blaða­mennska felst gjarnan í því að blaðamenn skrifa fréttir án þess að reyna að gægjast undir yfir­borðið til að koma auga á kjarna málsins. Oft felur þetta í sér að blaðamenn taka gagnrýnis­laust við texta frá þriðja aðila og birta. Einhverjir hafa kallað slíka blaða­mennsku „krana­blaða­mennsku“. 

Kolbeinn Óttarsson Proppe, blaða­maður Frétta­blaðsins og staksteina­höfundur Morgun­blaðsins féllu í djúpan pytt yfirborðs­blaða­mennsku í gær, þegar þeir fjölluðu um grein mína, sem birtist í Frétta­blaðinu sl. mánudag,“ skrifar Jón Ásgeir og bætir því við að það sé „raunar ekki nýlunda að staksteina­skrif risti grunnt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár