Þorsteinn Már segir sig úr stjórn norsks sjávarútvegsfyrirtækis

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur sagt sig úr stjórn norska útgerðar­félagsins Nergård. Astæðan er mútumál Samherja í Namibíu.

Hættur
Hættur Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur sagt sig úr stjórn Nergård.

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrr­verandi forstjóri Samherja, hefur sagt sig úr stjórn norska sjávar­útvegs­fyrir­tækisins Nergård. Þetta kemur fram í norskum fjöl­miðlum. Samherji á tæp 40 prósent í Nergård og  sat Þorsteinn Már í stjórninni frá árinu 2014 þar til nú. Sonur Þorsteins Más, Baldvin Þorsteinsson, situr hins vegar áfram í stjórninni. Samherji fjárfesti í fyrir­tækinu árið 2014. 

Ástæðan fyrir afsögn Þorsteins úr stjórn norska fyrir­tækisins  er frétta­flutningur Kveiks, Stundarinnar og Al Jazeera um mútu­greiðslur Samherja í Namibíu í síðustu viku. Frétta­flutningurinn byggir á gögnum sem Wikileaks lét fjöl­miðlunum í té og sem Wikileaks hefur nú birt opinber­lega á vefsíðu sinni. 

„Samvinna okkar við Þorstein hefur verið góð.“

Forstjóri Nergård, Tommy Torvanger, segir að Þorsteinn Már hafi gert Nergård mikið gagn sem stjórnar­maður og að hann búi yfir mikilli þekkingu, sérstak­lega hvað varðar byggingu skipa. „Samvinna okkar við Þorstein hefur verið góð. Hann býr yfir mikilli þekkingu. Hann er búinn að vera okkur mikil­vægur. Svo sjáum við bara til hvað framtíðin ber í skauti sér.“

Þorsteinn Már hefur nú sagt sig úr stjórn Síldar­vinnslunnar, þar sem hann var formaður, sem og úr stjórn útgerðar­félagsins Framherja í Færeyjum, þar sem hann einnig var formaður, og nú úr stjórn Nergård í kjölfar frétta­flutnings um mútu­greiðslurnar í Namibíu.

Þá hætti hann einnig sem forstjóri Samherja í síðustu viku en samkvæmt útgerðar­félaginu er sú ráðstöfun tíma­bundin og kann Þorsteinn Már því að snúa aftur í forstjóra­stólinn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár