Smæð og fjöldi verkalýðsfélaga vekur spurningar um skilvirkni

Hagfræði­dósent segir að sameining íslenskra stéttar­félaga gæti aukið skilvirkni kjara­samninga og stöðu félaganna við samninga­borðið.

Katrín Ólafsdóttir, dósent við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
Katrín Ólafs­dóttir, dós­ent við Við­skipta­deild Háskól­ans í Reykja­vík Mynd: Aðsend

Fjöldi fámennra stéttar­félaga hér á landi vekur upp spurningar um skilvirkni í gerð kjara­samninga. Mögulegt er að auka skilvirkni með meiri samvinnu á milli þeirra eða sameiningu félaganna, en auk þess geti það styrkt samnings­stöðu þeirra.

Þetta skrifar Katrín Ólafs­dóttir, dósent við viðskipta­deild Háskólans í Reykjavík, í grein í nýjasta tölublaði Vísbendingar sem kom út í gær. Í henni fer hún yfir gerð kjara­samninga á Íslandi út frá nýútgefinni skýrslu Kjara­tölfræði­nefndar og ber hana saman við stöðuna í Danmörku.

11 sinnum minni félög

Samkvæmt greininni er mikill munur á vinnu­markaðinum í löndunum tveimur. Á meðan yfir 140 stéttar­félög eru til hér á landi á vinnu­markaði fyrir 200 þúsund manns hafa Danir einungis 112 stéttar­félög, þrátt fyrir að vinnu­markaðurinn þar í landi nemi um 3,7 milljónum manna.

Ef tekið er tillit til þess að fleiri séu meðlimir stéttar­félaga hérlendis heldur en í Danmörku fæst að íslensk stéttar­félög séu að meðaltali 11 sinnum minni heldur en þau dönsku. Hér á landi eru að meðaltali um 1.500 manns í hverju stéttar­félagi, á meðan meðal­fjöldi félags­manna nær 17 þúsundum í Danmörku.

Vægi smárra stéttar­félaga hér á landi sést enn betur ef fjöldi þeirra sem eru á kjörskrá á bak við hvern kjara­samning er skoðaður. Þar sést að meirihluti kjara­samninga sem gerðir hafa verið í yfir­standandi samninga­lotu hafi undir hundrað manns á kjörskrá, eða 131 af 259 samningum alls. Til saman­burðar voru einungis fjórir samningar gerðir þar sem meiri en fimm þúsund manns voru á kjörskrá.

Að mati Katrínar vekur þessi fjöldi samninga sem innihalda fáa á kjörskrá upp spurningar um skilvirkni félaganna í kjara­samnings­gerð. „Meiri samvinna stéttar­félaga eða sameining þeirra gæti styrkt stöðu þeirra við samninga­borðið og aukið skilvirkni kjara­samninga,“ skrifar Katrín.

Hægt er að smella hér til að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár