Verðhækkun á rafmagni nánast alltaf hagkvæmari en rafmagnsleysi eða skömmtun

Sigurður Jóhannesson, doktor í alþjóða­viðskip­skiptum, segir að lítil sem engin hætta sé á rafmagns­skorti á almennum markaði hér á landi, að því gefnu að menn sé reiðu­búnir að greiða hærra verð fyrir það.

„Fyrir rétt verð geta stórnotendur leyst úr hér um bil hvaða skorti sem er á almennum rafmagns­markaði á Íslandi með því að láta af hendi brot af rafmagninu sem þeir nota. Kaup stórnotenda á rafmagni, rúmir 4/5 markaðsins, ógna því ekki almennum markaði, heldur mynda þau eins konar öryggisnet fyrir hann. Lítil sem engin hætta er á rafmagns­skorti á almennum markaði hér á landi, að því gefnu að menn séu reiðubúnir til þess að borga meira fyrir rafmagnið – og það vilja flestir miklu fremur en að fá ekkert rafmagn. Vandinn virðist helst liggja í því að íslenskir stjórnmálamenn vilja ekki láta rafmagns­verð á almennum markaði taka fullt mið af framboði og eftir­spurn.“

Þetta segir Sigurður Jóhannesson, doktor í alþjóða­viðskiptum í ítar­legri grein sem kemur til áskrif­enda Vísbendingar í dag, en í greininni fjallar hann um mögulegan skort á rafmagni hér á landi og hvernig hægt sé að afstýra skorti með því hækka rafmagns­verð á almennum markaði.

Í greininni fjallar hann um nýja spá Landsnets sem unnin var af verkfræði­stofunni Eflu en þar kemur fram að heildar­þörf fyrir rafmagn hér á landi verði komin fram úr fram­leiðslunni eftir fjögur ár, ef svo fer sem horfir.

Sigurður bendir hins vegar á að þegar rætt er um að rafmagn kunni að vanta á Íslandi eftir nokkur ár þá virðist ekki vera gert ráð fyrir því að verð á rafmagni bregðist við breytingum á framboði og eftir­spurn.

„En þegar rætt er um að rafmagn kunni að vanta á Íslandi eftir nokkur ár virðist ekki vera gert ráð fyrir að verð á þessari vöru bregðist við breytingum í framboði og eftir­spurn. Með öðrum orðum er ekki reiknað með að rafmagns­verð á almennum markaði breytist að neinu ráði, hvað annað sem gerist. Sagt er að íslenskir stjórnmálamenn leggist gegn öllum verð­hækkunum á almennum markaði með rafmagn. Stjórnmálamenn hafa nefnilega enn mikil ítök á íslenskum rafmagns­markaði, þó að hann eigi að heita frjáls, því að ríki og sveitarfélög eiga flest fyrirtæki sem selja rafmagn hér á landi. Meiningin með því að halda rafmagns­verði niðri er góð: Enginn vill borga meira fyrir rafmagnið en hann gerir nú. Það sama á reyndar við um flestar aðrar vörur. En sennilega veldur fast verð miklu meiri skaða en verðsveiflur,“ segir Sigurður.

Aftur á móti segir Sigurður að nýleg athugun sýni að almenningur þoli töluverðar verð­hækkun án þess að það dragi úr notkuninni að nokkru ráði. Breskar rann­sóknir sýni að mun dýrara sé fyrir almenning ef verulegur skortur verði á rafmagni fremur en verð­hækkun.

„En þegar rafmagnið fer alveg er tekið fyrir alla notkun – jafnt þá sem er nánast óþörf og notkun sem neytendur mundu borga margfalt markaðs­verð fyrir. Þess vegna er verð­hækkun nánast alltaf miklu hagkvæmari en rafmagns­leysi eða skömmtun. Hærra verð stuðlar líka að lausn vandans. Fólk fer að spara rafmagnið. Það kaupir sparperur og slekkur ljósin þegar það fer út úr herbergi. Eftir að verð hækkar er líka meira upp úr því að hafa að búa til rafmagn. Framboð eykst.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér, en vitnað er til lít­ils hluta grein­ar­innar hér að ofan, sem kemur til áskrif­enda á föstu­dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár