Samherji segir að Jóhannes hafi handvalið tölvupósta

Samherji hefur birt tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem það er gert tortryggi­legt að Wikileaks hafi ekki undir höndum tölvu­pósta Jóhannesar Stef­ánssonar frá ákveðnu tímabili. Ekki kemur fram neitt efnislegt um hvað ætti að hafa verið í þeim tölvu­póstum.

Jóhannes Stefánsson.
Jóhannes Stef­áns­son. Mynd: Skjáskot/RÚV

Samherji hefur sent frá sér tilkynningu þar sem því er haldið fram að Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrarinn sem afhenti Wikileaks gögn sem sýna fram á meintar mútu­greiðslur, skatta­sniðgöngu og peninga­þvætti fyrir­tækisins, hafi verið hand­valdir.

Í tilkynningunni segir að Jóhannes hefði haft að minnsta kosti 44.028 tölvu­pósta í pósthólfi sínu milli áranna 2014 og 2016. „Hann afhenti Wikileaks 18.497 tölvu­pósta frá þessu tímabili sem þýðir að hann afhenti aðeins 42% af tölvu­póstunum. Flestir þeirra pósta sem Jóhannes afhenti ekki eru frá árinu 2015 en hann virðist ekki hafa afhent Wikileaks neina tölvu­pósta frá því ári ef undan­skildir eru nokkrir póstar frá janúar.“

Í tilkynningu Samherja er það gert tortryggilegt að 58 prósent af tölvu­póstum Jóhannesar hafi ekki verið birtir. „Þeir fjöl­miðlar sem fjallað hafa um málið þurfa líka að velta fyrir sér hvort þeir hafi aðeins séð þau gögn sem styðja frásögn heimildar­mannsins en ekki heildar­myndina.“

Rúmar þrjár vikur eru frá því að Kveikur og Stundin birtu fyrstu umfjallanir sínar sem byggðu meðal annars á gögnum frá Wikileaks og vitnis­burði Jóhannesar. Í byrjun síðustu viku hófust að birtast tilkynningar á heimasíðu Samherja þar sem umfjöllun miðlanna, og tiltekinn frétta­maður sem vann að henni,hafa verið gerð tortryggileg. Þær hafa verið fimm talsins frá 26. nóvember. Í engri þeirra hafa verið lögð fram gögn sem sýna fram á að ásakanir á hendur fyrir­tækinu séu ekki réttar.

Í þeirri frétt sem birtist í dag er ekkert fjallað efnislega um hvað ætti að hafa verið í þeim tölvu­póstum Jóhannesar sem ekki hafa verið birtir.

Í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar var fjallað um viðskipta­hætti Samherja í Afríku, nánar tiltekið í Namibíu, á síðustu árum á meðan að fyrir­tækið náði undir sig mjög verðmætum hrossa­makrílskvóta í landinu. Það var gert með mútu­greiðslum til tveggja ráðherra í landinu og annarra manna úr þeirra nánasta hring.

Auk þess var fjallað um meinta skatta­sniðgöngu og peninga­þvætti Samherja í umfjöllun miðlanna.

Á mánudag var greint frá því að Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu, og þrír aðrir hafi verið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­ónir namibískra doll­ara, jafn­virði 860 millj­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­sóttan kvóta í land­inu.

Málefni Samherja eru auk þess til rann­sóknar hjá norskum yfir­völdum og hjá héraðs­saksóknara og skatt­rannsóknar­stjóra á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár