Tyrknesk stjórnvöld láta loka tugum fjölmiðla

Tyrknesk yfirvöld ætla að láta loka tugum fjölmiðla á næstunni í kjölfar valda­ráns­tilraunarinnar. Þúsundir hafa verið hand­teknir. Þingmaður VG vill fund í utan­ríkismála­nefnd vegna ástandsins í Tyrklandi.

Tyrknesk stjórn­völd ætla að loka tugum tyrkneskra fjölmiðla á næstunni. Flestir eru litlir svæðis­fjölmiðlar, en einnig nokkrir stærri. MBL telur upp þrjár frétta­stof­ur, sex­tán sjón­varps­stöðvar, 45 dag­blöð og fimmtán tíma­rit.

Valda­ránstilraun var gerð í landinu um miðjan júlí og eftir hana hafa hátt í 300 manns látið lífið og rúmlega 2.000 manns særst. Þúsundir hafa verið hand­teknir; hermenn, dómarar, hers­höfðingjar, blaðamenn og almenningur. Búið er að greina frá því að 8.651 hermaður hafi tekið þátt í vald­aránstilraun­inni, með 35 flug­vél­um, 37 þyrl­um, 74 skrið­drekum og þremur skipum.

Óskar eftir fundi vegna ástandsins

Steinunn Þóra Árna­dóttir, þingmaður VG og nefndar­maður í utan­ríkismála­nefnd, hefur óskað eftir fundi í nefndinni hið fyrsta um neyðar­ástand og þróun mála í Tyrklandi. Hún segir í tilkynningu að það sé rík ástæða til að kalla nefndina saman til að ræða ástandið og möguleg viðbrögð við því.

Þing­flokkur VG hefur fordæmt stöðu mála í Tyrklandi, fjölda­handtökur þar í landi, uppsagnir þúsunda óbreyttra borgara og skerðingu á ferða­frelsi á grund­velli pólitískra skoðana. Flokkurinn leggur áherslu á að Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, utan­ríkis­ráðherra, nýti hvert tækifæri á alþjóð­legum vettvangi til að koma skýrt á framfæri áhyggjum íslenskra stjórn­valda og íslensks almennings af mann­réttinda­brotum í Tyrklandi.

Lilja hefur sagt að staðan sé alvarleg og grannt sé fylgst með þróun mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár