Sagan endalausa um Eurovision

Eftirmál vegna Eurovision söngva­keppninnar í Kaupmanna­höfn, sem fram fór í maímánuði síðastliðnum, ætla engan enda að taka. Kostnaðurinn varð margfalt meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir en viðbrögðin minna helst á „Litlu gulu hænuna” þar sem allir, nema sú litla gula, sögðu "ekki ég.“ Í Eurovision sögunni vill hinsvegar enginn vera litla gula hænan og taka á sig ábyrgðina. Sitja uppi með apann eins og Danir kalla það.

Sigur­víman var varla runnin af Dönum eftir sigur Emmelie de Forest í Eurovision söngva­keppninni í maí í fyrra þegar byrjað var að bolla­leggja hvar í Danmörku keppnin skyldi haldin árið 2014. Nokkrir staðir voru nefndir, fyrir utan Kaupmanna­höfn var einkum talað um Boxen í Herning á Jótlandi. Boxen (heitir Jyske Bank Boxen) er fjölnotahús, var tekið í notkun 2010 og er einkum notað fyrir tónleika, sýningar, íþrótta­keppnir og ýmiskonar stærri viðburði. Boxen getur tekið allt að 15 þúsund manns í sæti og hljóm­burðurinn í húsinu þykir góður. Forum höllin í Horsens og Ráðstefnu­höllin í Óðinsvéum voru einnig nefndar.

Sjónir danska útvarpsins, DR, beindust þó fyrst og fremst að Kaupmanna­höfn. Fyrir því voru ýmsar ástæður nefndar. Flug­völlurinn á Kastrup er í tæplega níu kílómetra fjarlægð frá miðborginni, höfuð­stöðvar DR eru í Kaupmanna­höfn og fyrirséð að ef staður utan höfuð­borgarinnar yrði fyrir valinu myndi allt tilstandið við keppnina og undir­búning hennar kosta mikil ferðalög, tíma og fyrirhöfn. Auk þess var nefnt að til dæmis í Herning væri ekki nægt gistirými fyrir allan þann mannskap sem tengdist viðburði sem þessum. Þess vegna þótti stjórn­endum DR strax í upphafi Kaupmanna­höfn lang vænlegasti kosturinn.

Stálgrindahús verður tónleikahöll


Þann 2. sept­em­ber var til­kynnt að keppnin færi fram í höf­uð­borg­inni. Þótt það kæmi ekki sér­stak­lega á óvart duttu mörgum dauðar lýs úr höfði þegar greint frá keppn­is­staðum sjálfum. DR hafði semsé valið að halda keppn­ina í stóru stál­grinda­húsi á Refs­haleöen (sem er nú hluti Amager) á gamla athafna­svæði Burmeister & Wain skipa­smíða­stöðv­ar­innar. Síðan B&W varð gjald­þrota hafa bygg­ing­arnar á Refs­haleöen verið nýttar til ýmissa hluta og stóra stál­grinda­húsið um nokk­urra ára skeið verið notað sem leik­tjalda og bún­inga­geymsla fyrir Kon­ung­lega leik­húsið.

Margar efasemdar­raddir heyrðust, þessi forljóta skipa­smíðaskemma væri ekki boðleg sem tónlistar­höll, samgöngurnar við svæðið erfiðar, húsið yrði ekki tilbúið o.s.frv. o.s.frv.

Forsvars­menn DR og fyrir­tækisins Propjektselskabet, undir­fyrirtæki Wonderful Copenhagen (Ferðamála­samtök Kaupmanna­hafnar), sem skipulagði og sá um undir­búnings­vinnuna fullyrtu að allt yrði tilbúið í tíma, slíkar áhyggjur væru ástæðu­lausar. Samgöngu­málin yrðu leyst, þótt skemman, að utan, væri vissulega enginn fegurðar­auki yrði hún því glæsilegri að innan.

Allt gekk þetta eftir og flestir eða allir eru sammála um að keppnin sem slík hafi í alla staði tekist vel, sviðið verið glæsilegt o.s.frv.

Þótt margir hafi efast um að stál­grindarhús væri hentugt húsnæði undir Eurovision, er samdóma álit flestra að síðasta keppni hafi verið hin glæsilegasta.

Mjög langt eftirpartí


Eftir að keppnin var afstaðin kom fljótt í ljós að ekki hafði allt verið með felldu við und­ir­bún­ing­inn. Kannski væri rétt­ara að segja að ekk­ert hefði þar verið með eðli­legum hætti. Að minnsta kosti hvað fjár­málin varð­aði. Nokkrum dögum fyrir keppn­ina greindu danskir fjöl­miðlar frá því að kostn­að­ur­inn yrði meiri en áætl­anir gerðu ráð fyrir, lík­lega um 23 millj­ónir danskra króna (ca 475 millj­ónir íslenskar). Þótt það séu miklir pen­ingar hefðu lík­lega flestir sætt sig við það hefði sagan öll þar með verið sögð. En það var ekki svo, þessar 23 millj­ónir voru bara upp­hafið, topp­ur­inn á ísjak­anum. og þótt nú séu brátt liðnir sex mán­uðir frá keppn­inni eru fréttir af eft­ir­málum hennar nán­ast dag­lega í fjöl­miðlum

Þótt margir hafi efast um að stálgrindarhús væri hentugt húsnæði undir Eurovision, er samdóma álit flestra að síðasta keppni hafi verið hin glæsilegasta.
Þótt margir hafi efast um að stál­grind­ar­hús væri hent­ugt hús­næði undir Eurovision, er sam­dóma álit flestra að síð­asta keppni hafi verið hin glæsi­leg­asta.

Þann 2. maí, þegar keppnin var nýafstaðin, kröfðust nokkrir borgar­fulltrúar skýringa á þessum 24 milljóna króna auka­reikningi. Ekki voru komin nein viðhlítandi svör þegar tilkynnt var að auka­reikningurinn væri ekki 23 heldur 70 milljónir (1.450 milljónir íslenskar) Einn borgar­fulltrúi sagði þá að hann væri nokkurnvegin viss um að á endanum yrði þessi tala miklu hærri. Hann reyndist hafa rétt fyrir sér.

Hvernig í veröldinni stendur á þessu?


Þetta er spurn­ingin sem danskir stjórn­mála­menn kröf­uð­ust þess að fá svör við og jafn­framt hver bæri ábyrgð­ina. Varðandi ábyrgð­ina bendir hver á annan en böndin ber­ast alltaf að Wonderful Copenhagen (WF) og und­ir­fyr­ir­tæki þess. For­svars­menn segja að samn­ing­ur­inn við WF sé ekk­ert leynd­ar­mál, WF tók að sér að sjá um allan und­ir­bún­ing fyrir til­tekna upp­hæð, punktur og basta. Fyrir nokkrum dögum var skipuð sér­stök nefnd sem á að kom­ast til botns í mál­inu. Rík­is­end­ur­skoðun er líka að rann­saka málið og tvær nefndir á vegum danskra ráðu­neyta, semsé fjórar rann­sókn­ar­nefndir. Þessar rann­sóknir taka vænt­an­lega nokkra mán­uði en á að vera lokið fyrir vorið. Nokkrir af stjórn­endum WF hafa verið reknir og stjórn­ar­for­mað­ur­inn sagði af sér dag­inn áður en hann átti að fá upp­sagn­ar­bréfið

Komnir á fremsta hlunn með að aflýsa keppninni


DR hefur nú, eftir mik­inn þrýst­ing stjórn­mála­manna, birt 600 blað­síðna skýrslu um und­ir­bún­ing keppn­innar og samn­inga við WF. Það er fróð­leg lesn­ing og margt sem kemur á óvart. Til dæmis að verk­lýs­ing og kostn­að­ar­á­ætlun WF komst fyrir á einu blaði í A4 stærð. Í skýrsl­unni kemur líka fram að þangað til hálfum mán­uði fyrir keppn­ina ótt­uð­ust for­svars­menn DR að aflýsa yrði keppn­inni vegna þess að WF og und­ir­fyr­ir­tæki þess voru komin í þrot. Til að bjarga mál­inu lán­aði DR tugi millj­óna króna til að tryggja að keppnin félli ekki niður. WF hefur haldið því fram að DR hafi sífellt komið með nýjar kröfur um allt mögu­legt sem hafi hleypt kostn­að­inum upp, þessum ásök­unum vísar DR á bug.

307 milljónir?


Fyrir nokkrum dögum sagði dag­blaðið MX Metroex­press frá því að sam­kvæmt gögnum sem blaðið hefði undir höndum hefði kostn­að­ur­inn við Eurovision keppn­ina í heild numið 307 millj­ónum danskra króna (ca 6.4 millj­arðar íslenskir). Þing­maður sem blaðið ræddi við sagði að sér hefði svelgst á morg­un­kaff­inu þegar hann sá þessa tölu. DR hefur ekki stað­fest að þessi tala sé rétt, en hvort svo er kemur vænt­an­lega í ljós þegar rann­sókn­ar­nefnd­irnar birta sín gögn.

Fjöl­miðlar hér í Danmörku hafa eytt miklu púðri í þetta mál og tala alltaf um það sem “skandale” hneyksli. Þeir hafa týnt allt mögulegt til sem ekki er hægt að koma fyrir í pistli sem þessum. En eftir að hafa fylgst með þessu máli vikum og mánuðum saman getur þessi pistla­höfundur tekið undir með blaða­manni sem sagði eitthvað á þá leið að„hér var ekki bara pottur brotinn heldur heil búsáhaldabúð."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár