Grænlendingar svara fyrir sig: „Trump veit ekki hvernig mér líður“

Aaja Chemnitz, fulltrúi Grænlendinga á danska þinginu, segir útilokað að NATO geti samið um framtíð Grænlands, án að komu Grænlendinga. Íbúar í Nuuk lýsa áhyggjum og ótta. Sveitar­stjóri segir námu­vinnslu aldrei verða samþykkta í þessu andrúms­lofti.

Treystir á stuðning annarra þjóða
Treystir á stuðn­ing ann­arra þjóða Aaju Poulsen er ein af þeim sem hefur áhyggjur af fram­vindu mála en heldur í von­ina um að aðrar þjóðir stígi inn í og grípi í taumana. Hún segir súr­r­eal­ískt að fylgj­ast með umræð­unni, það er eins og Trump átti sig ekki á því að líf fólks sé undir.

Aaja Chemnitz, annar tveggja grænlenskra fulltrúa á danska þinginu, sendi frá sér yfir­lýsingu á Facebook í kvöld þar sem hún segir að NATO ekki hafa umboð til þess að semja um neitt sem snertir Grænland án Grænlendinga. „Ekkert um okkur, án okkar.“

Yfir­lýsingin er viðbragð við frétt New York Times sem birt var í kvöld, þess efnis að innan NATO sé rætt um mála­miðlun sem feli í sér að Danir gefi eftir hluta af Grænlandi til Banda­ríkjanna. 

Aaja tilheyrir Inuit Ataqatigiit, vinstri sinnuðum flokki sem vill ná fram sjálf­stæði Grænlendinga, en telur það ekki tímabært að svo stöddu. Formaður flokksins er Múte B. Egede, fyrr­verandi forsætis­ráðherra og núverandi fjármála­ráðherra.

Í fram­lín­unniSamstaða og sam­hæf­ing skipta sköpum, skrif­aði Aaja í gær og birti þessa mynd af sér með Múte B. Egede og Jens-Frederik Nielsen, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands.
…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár