Ursula von der Leyen nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB

Ursula von der Leyen tekur við af Jean-Claude Juncker sem næsti forseti framkvæmdar­stjórnar ESB. Hún hefur bæði stuðning Angelu Merkel og Emmanuel Macron.

Ursula von der Leyen
Ursula von der Leyen Mynd: EPA

Staðfest er að hin þýska Ursula von der Leyen sé næsti forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins og verður hún þar með fyrsta konan til að gegna því embætti.

Von der Leyen mun taka við af Jean-Claude Juncker sem hefur verið forseti framkvæmda­stjórnar ESB frá árinu 2014. Ursula von der Leyen hefur stuðning

https://www.bbc.com/news/world-europe-48847200

bæði Angelu Merkel og Emmanuel Macron. Hún er

hagfræðingur

frá London School of Economics og lærði enn fremur læknis­fræði í Hanover. Hún er einnig í sama stjórn­málaflokki og Merkel í Þýska­landi.

Vil sterka sameinaða Evrópu

Við tilkynningu úr niður­stöðum kosninganna um hvort von der Leyen myndi taka við stöðunni sagði hún „traustið sem þið berið til mín er trú ykkar á Evrópu, trú á sameinaða og sterka Evrópu, frá austri til vesturs, frá suðri til norðurs.“

Von der Leyen er stuðnings­maður meiri samþættingu Evrópu sem hefur gert ýmsar öfga-hægri ríki­stjórnir í Evrópu andsnúna henni, til að mynda í Ungverja­landi.

Hvað gerir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins?

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins samanstendur af einum nefndar­manni frá hverju meðlima­ríki Evrópu­sambandsins, því eru alls 28 nefndar­menn. Forseti framkvæmda­stjórnarinnar ákveður auk þess hvaða nefndar­maður mun bera ábyrgð á hvaða málefni innan stjórnarinnar.

Framkvæmda­stjórnin stingur upp á nýjum Evrópu­lögum við Evrópu­þingið ásamt því sem hún kemur nýrri lögleiðingu í framkvæmd. Jafnframt kemur hún ákvörðunum Ráðherra­ráðs Evrópu í framkvæmd og sér framkvæmda­stjórnin um fjárhags­áætlun Evrópu­sambandsins.

Forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu er að vissu leiti talsmaður Evrópu­sambandsins innan alþjóða­stofnana, sérstak­lega þegar kemur að viðskiptum og mannúðar­störfum. Enn fremur fer forsetinn fyrir samnings­nefnd um alþjóða­samninga ESB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár