Tvær konur tilnefndar í æðstu stöður Evrópusambandsins

Christine Lagarde og Ursula von der Leyen hafa verið til­nefndar sem seðla­banka­stjóri Evrópu og for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Fái þær stöð­urnar verða tvær konur í æðstu stöðum Evr­ópu­sam­bands­ins í fyrsta skipti..

Hin þýska Ursula von der Leyen hefur verið til­nefnd sem for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins og hin franska Christine Lagarde sem seðla­banka­stjóri Evrópu, að því er kemur fram í frétt BBC. Enn á atkvæða­greiðsla um til­nefn­ingu þeirra eftir að fara í gegnum Evr­ópu­þingið, en fái þær stöð­urnar verða tvær konur í æðstu stöðum Evr­ópu­sam­bands­ins í fyrsta skipti.

Hljóti van der Leyen stöð­una mun hún taka við af Jean-Claude Juncker sem hefur verið for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB frá 2014. Ursula von der Leyen hefur stuðn­ing bæði Angelu Merkel og Emmanuel Macron. Ursula von der Leyen er hag­fræð­ingur frá London School of Economics og lærði enn fremur lækn­is­fræði í Hanover. Hún er einnig í sama stjórn­mála­flokki og Merkel í Þýska­landi.

Verði Lag­arde skipuð mun hún taka við af Mario Drag­hi en Lag­arde er núver­andi yfir­maður Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Hún hefur einnig stuðn­ing Merkel og Macron. Lagarde er lög­fræð­ingur að mennt og meist­ari í stjórn­mála­fræði frá Stjórn­mála­skóla Aix en Provence. Hún var enn fremur við­skipta­ráð­herra Frakk­lands árið 2005 og fjár­mála­ráð­herra árið 2007.

For­sæt­is­ráð­herra Belgíu, Charles Michel, er til­nefndur sem for­seti leið­toga­ráðs Evrópu og Josep Borrell sem æðsti full­trúa sam­bands­ins í utan­rík­is- og örygg­is­mál­u­m, að því er kemur fram í frétt BBC.

Hvernig fer valið fram?

21 ríki þurfa að sam­þykkja nýjan for­seta fram­kvæmda­stjórnar ásamt því að mann­fjöldi þeirra ríkja þarf að vera full­trúi 65 pró­sent heild­ar­mann­fjölda Evr­ópu­sam­bands­ins.

Evr­ópu­þingið getur haft áhrif á valið með því að til­nefna

Spitzenkandídat

. Hver og einn stjórn­mála­hópur innan þings­ins stingur upp á einum ein­stak­ling til að taka að sér hlut­verk­ið. For­seti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar verður sá Spitzenkandídat sem kemur úr flokknum með flest sæti eða sá sem nokkrir flokkar hafa fylkt sér bak við.

Áhyggjur eru uppi að til­nefn­ing­arnar verði ekki sam­þykktar í Evr­ópu­þing­inu þar sem eng­inn þeirra ein­stak­linga í nýju stöð­unum eru „Spitzenkandídatar.“ Auk þess er tölu­verð gagn­rýni að öll þau sem til­nefnd voru í æðstu stöð­urnar hafi verið Vestur-Evr­ópu­búar en eng­inn frá Austur-Evrópu.

Ekki er þó um form­legt ferli að ræða þar sem ekki eru regl­urnar skráðar í neinn sátt­mála. Um er því að ræða venju fremur en reglu. Evr­ópu­þingið gæti mögu­lega komið í veg fyrir að þær hljóti störfin vegna óánægju sinn­ar.

Hvað gerir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins?

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins sam­anstendur af einum nefnd­ar­manni frá hverju með­lima­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, því eru alls 28 nefnd­ar­menn. Forseti fram­kvæmda­stjórn­ar­innar ákveður auk þess hvaða nefnd­ar­maður mun bera ábyrgð á hvaða mál­efni innan stjórn­ar­innar.

Seðlabanki Evrópu vinnur að öllu sem við kemur Evrunni, miðar að því að halda verðum stöðugum, ásamt því að leiða og framfylgja efnahags- og peningastefnu ESB. Bankinn ákveður einnig vexti innan evrusvæðisins.
Seðla­banki Evrópu vinnur að öllu sem við kemur Evrunni, miðar að því að halda verðum stöð­ugum, ásamt því að leiða og fram­fylgja efna­hags- og pen­inga­stefnu ESB. Bankinn ákveður einnig vexti innan evru­svæð­is­ins.

Fram­kvæmda­stjórnin stingur upp á nýjum Evr­ópu­lögum við Evr­ópu­þingið ásamt því sem hún kemur nýrri lög­leið­ingu í fram­kvæmd. Jafn­framt kemur hún ákvörð­unum Ráð­herra­ráðs Evrópu í fram­kvæmd og sér fram­kvæmda­stjórnin um fjár­hags­á­ætlun Evr­ópu­sam­bands­ins.

Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evrópu er að vissu leiti tals­maður Evr­ópu­sam­bands­ins innan alþjóða­stofn­ana, sér­stak­lega þegar kemur að við­skiptum og mann­úð­ar­störfum. Enn fremur fer for­set­inn fyrir samn­ings­nefnd um alþjóða­samn­inga ESB.

Hvað gerir seðlabanki Evrópu?

Seðla­banki Evrópu vinnur að öllu sem við kemur Evrunni, miðar að því að halda verðum stöð­ugum, ásamt því að leiða og fram­fylgja efna­hags- og pen­inga­stefnu ESB. Bankinn ákveður einnig vexti innan evru­svæð­is­ins.

Seðla­bank­inn ber einnig ábyrgð á að eft­ir­lit með fjár­mála­mörk­uðum og -stofn­unum sé fram­fylgt af yfir­völdum með­lima­ríkja ESB. Hann vinnur einnig með öllum seðla­bönkum með­lima­ríkja ESB.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið undanfarið ár