Stjórnarlaun í Arion verða ekki hækkuð eftir mótmæli lífeyrissjóða

Mótmæli lífeyris­sjóða við hækkun á launum stjórnar­manna í Arion banka skilaði árangri. Launin verða áfram þau sömu en greiðslum til stjórnar­manna sem búa erlendis er breytt vegna „þeirrar fyrir­hafnar sem hlýst af ferða­lögum til og frá landinu.“

Stjórn Arion banka hefur ákveðið að draga til baka fyrri tillögu um umtals­verða hækkun á launum stjórnar­manna eftir að Lífeyris­sjóður verzlunarmanna, þriðji stærsti eigandi bankans, lagði fram tillögu þess efnis sem átti að fara fyrir aðalfund Arion banka í dag.

Þess í stað hefur stjórnin lagt fram nýja tillögu sem byggir að mestu á tillögu sjóðsins, í samráði við hann þar sem laun stjórnar­manna verða áfram þau sömu en erlendir stjórnar­menn fá greiddar 300 þúsund krónur fast fyrir hvern stjórnar­fund sem þeir sækja í eigin persónu. Það sé eðlilegt til að koma til móts við „sjónarmið um að eðlilegt sé að greiða stjórnar­mönnum sem búsettir eru erlendis eingreiðslu vegna þess vinnutaps og þeirrar fyrir­hafnar sem hlýst af ferða­lögum til og frá landinu vegna stjórnar­starfa.“

Stjórn Arion banka hefur enn fremur ákveðið að draga til baka tillögu sína um breytingar á starfs­reglum tilnefningar­nefndar bankans. Þá gerir stjórn bankans þá tillögu að fjárhæð lækkunar hlutafjár verði hækkuð sem nemur 40 milljón hlutum með eyðingu á eigin bréfum, þannig mun nafnverð hlutafjár lækka úr 1.730.000.000 krónum í 1.660.000.000 krónur.

Stjórn Arion banka hafði lagt til að mán­að­ar­laun stjórn­ar­manna verði 600 þús­und krónur á mán­uði, að mán­að­ar­laun vara­for­manns verði kr. 900 þús­und krónur og að mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns­ins, Brynj­ólfs Bjarna­son­ar, verði 1,2 millj­ónir króna á mán­uði. Auk þess áttu stjórn­ar­menn sem búsettir eru erlendis að fá 300 þús­und krónur fyrir ferða­lög vegna hvers stjórn­ar­fundar sem þeir sækja í eigin per­sónu. Þar að auki yrði heim­ilt að greiða þeim stjórn­ar­mönnum sem sitja í und­ir­nefndum stjórnar 200 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund, en þó að hámarki 400 þús­und krónur á mán­uði. For­menn stjórn­ar­nefnda áttu að geta fengið 300 þús­und krónur fyrir hvern set­inn fund, en þó aldrei meira en 600 þús­und krónur á mán­uði.

Með því yrðu laun erlendu stjórn­ar­mann­anna, sem verða tveir eftir aðal­fund­inn í dag, 37 pró­sent lægri þrátt fyrir að fyr­ir­huguð hækkun á grunn­launum yrði að veru­leika. Stjórn­ar­laun íslensku stjórn­ar­mann­anna myndu hins vegar hækka um 22 pró­sent.

Kjarninn greind i frá því í gær að Lífeyris­sjóður verzlunarmanna hefði lagst gegn launa­hækkuninni og lagt til að „mán­að­ar­laun stjórn­ar­manna verði kr. 490.900, mán­að­ar­laun vara­for­manns verði kr.736.200 en mán­að­ar­laun stjórn­ar­for­manns verði kr. 981.400.“ Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, stærsti ein­staki eig­andi bank­ans, hafði áður til­kynnt að hann myndi greiða atkvæði gegn til­lög­u stjórnar Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár