Einn af vogunarsjóðunum sem keyptu hlut í Arionbanka lenti í ruslflokki í gær

Rekstrar­horfur Och-Ziff Capi­tal eru óvissu undirorpnar að mati S&P. Sama fyrirtæki varð uppvíst að mútu­greiðslum til opinberra starfs­manna í Líbíu og Kongó og er nú hluthafi í Arionbanka í gegnum sjóðinn Sculptor Investments.

Lánshæfis­einkunn vogunar­sjóðsins Och-Ziff Capi­tal Mana­gement Group var færð niður í ruslflokk hjá greiningar­fyrirtækinu Stand­ard & Poor’s í gær, en tilkynnt var á sunnudag að sjóður á vegum fyrir­tækisins hefði keypt 6,6 pró­sent hlut í Arion banka í lok­uðu útboði.  

MarketWatch greindi frá breyttri lánshæfis­einkunn Och-Ziff í gær og Kjarninn vakti athygli á málinu í dag. Um er að ræða sama vogunar­sjóð og varð uppvís að mútu­greiðslum til opinberra starfs­manna í Líbíu og Kongó.

Að mati Standard and Poor's hefur rekstur félags­ins versnað að undan­förnu vegna minnk­andi eigna í stýr­ingu og eru horfur þess taldar neikvæðar til framtíðar. Af þeim sökum var einkunn fyrir­tækisins færð í flokkinn BB, en slík einkunn gefur alla jafna til kynna að óvissa ríki um framtíð og rekstrar­horfur fyrir­tækis og að ekki þurfi mikið til að það lendi í þeirri stöðu að geta ekki staðið við fjárhagslegar skuld­bindingar sínar. 

Tilkynnt var um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár