Trump reynir að semja sig frá málsóknum vegna svika

Þrátt fyrir að hafa unnið kosninga­sigur í Banda­ríkjunum stendur Donald J. Trump enn í stórræðum vegna svika í tengslum við Trump University.

Donald J. Trump, sem nú er að raða saman stjórnar­liði sínu í Hvíta húsinu, er langt komin með að ná sáttum í máli fyrr­verandi nemenda Trump University gegn honum, og er talið að hann muni þurfa að greiða 25 milljónir Bandaríkja­dala vegna þessa, eða sem nemur um þremur milljörðum króna.

Samkvæmt frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC í dag, þá hafa lögmenn Trumps sótt það stíft að undan­förnu að ná sáttum í málinu, en máls­meðferð í dómsal hefst í einu málinu 28. nóvember í San Diego, að óbreyttu.

Málið snýst um það, að nemendur sem greiddu á bilinu 28 til 35 þúsund Bandaríkja­dali í skóla­gjöld, telja sig hafa verið svikna þar sem ekkert af því stóðst sem auglýst var þegar Trump University auglýsti námskeið skólans árið 2005.

Sérstak­lega beinast spjótin að auglýsingum þar sem tekið var fram að Trump myndi sýna nemendum galdra­brögðin að baki árangri á fasteigna­markaði. Í stað þess að fá innsýn í „galdrana“ hjá Trump, þá fengu nemendur að horfa á fyrir­lestra þar sem Trump fór yfir viðskipta­feril sinn, og veldið sem hann tók við af foreldrum sínum.

Engin dýpt var að baki námskeiðum skólans, og var hann strax gagn­rýndur harðlega fyrir að vera yfirborðs­kenndur og sviksamlegur í sinni nálgun að háskóla­starfinu.

Trump University hætti allri starfsemi árið 2010, og hefur Eric Schneiderman, saksóknari í New York, sagt að skólinn hafi verið „svika­mylla frá upphafi til enda“. Hann hefur leitt málsóknir gegn Trump vegna starfseminnar hjá Trump University.

Trump sagðist aðspurður í júní síðastliðnum reikna með að semja um málið, og eins og áður sagði, þá greindi BBC frá því í dag að Trump og lögmenn hans reyndu nú til þrautar að semja um málið.

Uppfært: New York Times hefur greint frá því, að Donald Trump hafi í dag samþykkt að greiða 25 milljónir Bandaríkja­dala til þeirra sem voru að leita réttar síns, vegna svika Trump University. Málsóknirnar eru því úr sögunni og málunum lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár