Mitt mesta afrek. Dagbók frá Kaupmannahöfn XIV.

Illugi Jökulsson er rígmontinn af hjólatúr sem hann fór í frá Jónshúsi.

Eins og sjá má
Eins og sjá má var ég orð­inn svo aðfram­kom­inn úr hungri og þorsta eftir hjóla­t­úr­inn langa á app­el­sínugula hjól­inu að ég rauk beint í næstu búð og keypti mér jarð­ar­ber. Og var langt kom­inn með kass­ann áður en ég var einu sinni kom­inn út að hjól­inu.

Jæja. Að vinna sitt mesta líkamlega afrek 57 ára, 30 kílóum of þungur, eftir átta hjarta­þræðingar, búinn að fara í liðþófa­aðgerðir á báðum hnjánum og nánast alveg æfinga­laus, það var ekki endilega það sem ég átti von á að mér tækist.

Hjólaði rétta 100 kílómetra, sleitu­laust (tvö 7 mínútna hlé á kaffi­húsum), helming leiðarinnar í furðu köldum mótvindi, tvo þriðju leiðarinnar í ausandi rigningu og öngri regnkápu.

Og ekki láta neinn ljúga því að ykkur að það séu engar brekkur á leiðinni frá Kaupmanna­höfn norður á Helsingja­eyri. Þær eru bara ansi margar, og alveg jafn margar á leiðinni til baka.

Stundum má maður líklega leyfa sér að vera ánægður með sjálfan sig. Helvíti var þetta gott hjá mér!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár