Finnst „óeðlilegt“ að vitnað hafi verið í þingræðu sína í óundirbúnum fyrirspurnartíma

Theodóra S. Þorsteins­dóttir, þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar, telur að Logi Einarsson, formaður Samfylk­ing­ar­innar, hafi hegðað sér óprúð­mann­lega með því að vitna í ræðu hennar í spurningu til Óttars Proppé. Kallar eftir vandaðri vinnu­brögðum.

Theodóra S. Þorsteins­dóttir, þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar, er óánægð með að vitnað hafi verið í þingræðu hennar í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi þegar Logi Einarsson beindi spurningu til Óttars Proppé heilbrigðis­ráðherra og formanns Bjartrar framtíðar.

Theodóra átaldi Loga fyrir þetta í ræðu undir liðnum störf þingsins í gær og sakaði hann um að hafa verið að „spyrja aðra út úr“ sinni ræðu. 

„Mér finnst ekki mikil prúð­mennska falin í því að spyrja aðra út úr minni ræðu þegar ég var sjálf í húsi og tiltæk til að svara spurningum þing­mannsins. Ég veit ekki hvað hv. þm. Loga Einars­syni gengur til með svona háttalagi og ég vona svo sannarlega að það sé ekki til marks um þau vinnu­brögð sem hann eða aðrir þeir sem ekki eiga sæti í ríkis­stjórn að þessu sinni ætla að ástunda,“ sagði Theodóra. 

Þingræða Loga, sem Theodóra vísaði til, hljóðaði svo:

„Frú forseti. Í nokkrum ræðum á Alþingi í gær var fjallað töluvert um vinnu­brögð og ný vinnu­brögð. Menn töluðu um að byggja brýr. Mér fannst þetta málflutningur sem var vert að taka mark á. Og að menn ynnu þvert á meiri hluta og minni hluta. Ein af þeim sem flutti ágæta ræðu var þingmaður og formaður þing­flokks Bjartrar framtíðar, hv. þm. Theodóra S. Þorsteins­dóttir. Hún sagði, með leyfi forseta: „Í mínum huga eru þingmenn og stjórn­málaflokkar ekki annaðhvort með eða á móti. Við erum ekki við og þið. Við erum öll í sama liði. Okkur var falið mikilvægt verkefni þar sem hagsmunir þjóðarinnar liggja undir, ekki hagsmunir stjórn­málaflokka eða okkar þingmanna. Mörg þeirra verkefna sem finna má í stefnu­yfirlýsingu og í þeim þingmálum sem lögð verða fram á vorþingi eru mál sem allir flokkar lögðu ríka áherslu á í aðdrag­anda kosninga. Nú mun reyna á það hvort þeim flokkum sem ekki eiga aðild að núverandi ríkis­stjórn var alvara með þeim yfir­lýsingum um að vinnu­brögð í stjórn­málum þörfnuðust yfirhalningar.“ Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. heilbrigðis­ráðherra hvort sá ásetningur gildi líka um þá þingmenn sem tilheyra stjórnar­meirihluta Bjartrar framtíðar, þ.e. að standa við kosninga­loforð. Ég er þó einkum að kalla eftir því hvernig þingmenn Bjartrar framtíðar munu nálgast tillögur og frumvörp sem munu koma fram frá stjórnar­andstöðunni og eru í samræmi við áherslumál þess flokks í aðdrag­anda kosninga. Ég get nefnt frumvarp um greiðslu­þátttöku sjúklinga sem mun koma fram, um áfram­haldandi vinnu við gerð stjórnar­skrár í samræmi við niður­stöður stjórnlaga­ráðs, að þjóðin fái sjálf að ákveða áfram­haldandi ESB-viðræður og kerfis­breytingar í sjávar­útvegi. Hin spurningin er svo: Eru þingmenn Bjartrar framtíðar bundnir á einhvern hátt í stjórnar­samstarfinu til að greiða atkvæði gegn gefnum loforðum eða með teknu tilliti til hvenær tillögur koma fram?“

Finnst tilvitnunin skrítin

Theodóra telur að málflutningur Loga hafi verið óeðli­legur. „Hátt­virtur þingmaður Logi Már Einarsson kom hér í pontu í gær og gerði að umtals­efni orð sem ég lét falla í umræðu um stefnu­ræðu forsætis­ráðherra í fyrra­kvöld. Það skrýtna var að hann beindi fyrir­spurn sinni að virðu­legum heilbrigðis­ráðherra,“ sagði hún í umræðum undir liðnum störf þingsins í gær. Sem kunnugt er sitja einungis ráðherrar en ekki óbreyttir þingmenn fyrir svörum í óundirbúnum fyrir­spurnar­tímum.  

Oddný Harðar­dóttir, þingkona Samfylkingarinnar, gerir málið að umtals­efni á Facebook. „Þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar kvartar undan því á Alþingi að formaður flokksins sé spurður út í kosninga­loforð og efndir þeirra. Hún kallar það slæm vinnu­brögð. Ég skil ekkert lengur í þessu tali BF um vinnu­brögð,“ skrifar hún. 

Theodóra svarar á þessa leið: „Engan vegin að kvarta undan að við séum spurð út í kosninga­áherslur, enda erum við búin að svara þeim. Athugasemd mín snýr að því að vitna í mína ræðu og mín orð og spyrja aðra í BF út í þau, þar sem ég hef ekki tækifæri til þess að svara. Sér í lagi þar sem ég var að fjalla um hvernig ég vil vinna "Í mínum huga" hófst það sem Logi hefur eftir mér og spyr Óttarr útí. Ég er bundin af minni sannfæringu, það ætti enginn annar að svara fyrir hana.“

Aðspurð hvort henni finnist í alvörunni óeðlilegt að vitnað sé í orð þingmanns Bjartrar framtíðar í fyrir­spurn til formanns Bjartrar framtíðar skrifar Theodóra:

„Ef ykkur finnst þetta góður bragur og eðlilegt þá virði ég það. Mér finnst það hins vegar mjög óeðlilegt og leyfi mér að minnast á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár