Gríðarlegir hagsmunaárekstrar ef Trump verður forseti

Rannsókn Newsweek leiðir í ljós að fjöldi erlendra ríkja og fyrir­tækja á í viðskiptum við Trump-samsteypuna, svo að hagsmuna­árekstrar við utan­ríkis­stefnuna yrðu daglegt brauð ef Donald Trump kæmist í Hvíta húsið.

Aldrei fyrr hefur fram­bjóðandi til forseta Banda­ríkjanna haft jafn mikil fjárhagsleg tengsl við bæði bandamenn og óvini Banda­ríkjanna og Donald Trump., og aldrei fyrr hafa viðskipti verið eins mikil ógn við Banda­ríkin. Þetta er niður­staða umfangs­mikillar rann­sóknar Newsweek á viðskipta­tengslum Trump og Trump-samsteypunnar.

„Ef Donald Trump vinnur í þessum kosningum og fyrir­tækinu verður ekki strax lokað eða tengslin við Trump-fjöl­skylduna slitin með öllu, gæti utan­ríkisstefna Banda­ríkjanna vel verið til sölu,“ segir Newsweek.

Trump Organization hefur ekki verið mikið til umfjöllunar í fjöl­miðlum, en er risastór samsteypa sem talið er að tryggi Trump-fjöl­skyldunni hundruði milljóna dala á hverju ári. Newsweek tók fjölda viðtala við yfirmenn hjá fyrir­tækinu og alþjóð­lega bandamenn og segir að í ljós hafi komið fyrirtæki með náin tengsl við alþjóð­lega fjármagns­eigendur, erlenda stjórn­málamenn og jafnvel glæpamenn, þótt ekkert bendi til þess að fyrirtæki hafi gert nokkuð ólöglegt. Einnig hafi komið í ljós mikið flækju­stig í samningum sem væri ekki bara hægt að hætta við ef Trump yrði forseti. „EF Trump flytur inn í Hvíta húsið og fjöl­skylda hans heldur áfram að hagnast á einhvern hátt af þessu fyrirtæki, á meðan eða jafnvel eftir forsetatíð hans, verða hagsmuna­árekstrar og siðferðisleg kviksyndi í nánast öllum ákvörðunum hans í utan­ríkismálum.“

Newsweek bendir á það að í mörgum ríkjum hafi stjórn­völd bein eða óbein völd yfir fyrir­tækjum, og þar á meðal sé fjöldi fyrir­tækja sem nú þegar sé í viðskiptum við Trump-samsteypuna. Þannig gætu stjórn­völd í þessum írkjum reynt að hafa áhrif á Trump sem forseta með viðskiptum við fyrir­tækið, og því væri hægt að færa fyrir því rök að löglegar mútur frá erlendum ríkjum yrðu raunhæfur möguleika á meðan hann væri forseti.

Suður-Kórea, Indland, Tyrkland, Sameinuðu arabísku fursta­dæmin, Líbýa, Aserbaídsjan, Rússland og Úkraína eru meðal þeirra ríkja sem tekin eru dæmi af tengslum Trump við í umfjöllun Newsweek, en viðskiptin ná til svo margra landa að það sé ómögulegt að greina hvern einasta hagsmuna­árekstur. Fyrir­tækið hefur einnig djúp tengsl við Kína, Brasilíu, Búlgaríu, Argentínu, Kanada, Frakkland, Þýskaland og fleiri lönd.

Eitt dæmið sem Newsweek segir sérstak­lega truflandi eru tengsl Trump við Gaddafi, fyrrum einræðis­herra í Líbýu, sem stjórn­völd í Banda­ríkjunum sögðu að tengdist hryðjuverka­samtökum. Trump sóttist eftir viðskiptum við Líbýumenn og hugmyndin var að koma upp hóteli við Miðjarðar­hafið. Ári síðar, árið 2009, bauð Trump Gaddafi að leigja húsið sitt í Westchester í New York. Gaddafi borgaði honum fyrir leiguna en eftir mótmæli fólks á staðnum ákvað Trump að banna Gaddafi að vera þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár