Arion banki sagði upp 9 starfsmönnum í gær – 20 störf farin á skömmum tíma

Hagræðingar­aðgerðir eru nú víða í fjármála­kerfinu. Vika er síðan Íslands­banki sagði upp 16 starfs­mönnum.

Arion banki sagði upp níu starfs­mönnum í gær, og voru flest störfin í höfuð­stöðvum bankans. Þetta stað­festir Haraldur Guðni Eiðsson, yfirmaður samskipta­mála hjá bankanum. „Almennt hefur bankinn verið á þeirri vegferð að auka skilvirkni í rekstrinum. Starfs­fólki bankans hefur fækkað jafnt og þétt á undan­förnum árum og höfum við reynt að nýta starfsmanna­veltu eins og hægt er en það dugar ekki alltaf til. Ef horft er til allrar starfsmanna­veltu og annars ársfjórðungs þá má ætla að fækkun starfs­fólks nemi u.þ.b. 20,“ segir Haraldur Guðni.

Bankinn hefur gengið í gegnum nokkurn mótbyr að undan­förnu, meðal annars vegna milljarða útlána­taps í tengslum við fall WOW air, Primera og United Silicon.

Hagn­aður sam­stæðu Arion banka á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs nam einum millj­arði króna. Á sama tíma­bili í fyrra var hagn­að­ur­inn 1,9 millj­arð­ar.

Arð­semi eig­in­fjár var 2,1 pró­sent, í sam­an­burði við 3,6 pró­sent á sama tíma í fyrra, en svo lítil arð­semi telst lág fyrir banka­rekst­ur, í alþjóð­legum sam­an­burði.

Slæm afkoma dótt­ur­fé­lags bank­ans, Valitor, hefur nei­kvæð áhrif á rekstur bank­ans, en bók­fært virði félags­ins hefur lækkað um 1,6 millj­arð frá ára­mót­um, af því er fram kemur í upp­gjör­inu. Það var 15,7 millj­arðar í árs­lok í fyrra en var í lok mars 14,1 millj­arð­ur.

Stefán Pétursson, starfandi banka­stjóri bankans, lét hafa eftir sér í frétta­tilkynningu vegna afkomu á fyrsta ársfjórðungi, að fjárhags­staða bankans væri sterk og mikilvæg skref hafi verið stigin í hagstæðari fjármagns­skipan, meðal annars með lækkun á hlutafé.

Heild­ar­eignir námu 1.223 millj­örðum króna í lok mars 2019 sam­an­borið við 1.164 millj­arða króna í árs­lok 2018 og eigið fé nam 193 millj­örðum króna, sam­an­borið við 201 millj­arð króna í árs­lok 2018.

Nokkuð hefur verið um hagræðingar­aðgerðir á fjármála­markaði að undan­förnu, en fyrir viku síðan sagði Íslands­banki upp 16 starfs­mönnum, bæði úr höfuð­stöðvum og útibúa­neti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár