Fjárfestar taka fréttum um nýjan forstjóra Twitter ekki vel

Fjár­festar í Banda­ríkjunum hafa ekki tekið fréttum af nýjum forstjóra Twitter vel, og hefur gengi hluta­bréfa félagsins fallið í dag um 7,5 prósent. Nýr forstjóri Twitter verður einn stofnenda félagsins, Jack Dorsey. Hann er einnig starfandi forstjóri félagsins Square sem er að undirbúa skráningu á markað, en hann tók þátt í að stofna félagið, ásamt fleirum, árið 2009.

Í umfjöllun Wall Street Journal kemur fram að rekstur Twitter hafi alltaf verið krefjandi og hluthafar séu ekki með traustar upplýsingar um að samfélags­miðillinn sé búinn að finna viðskipta­módel sem henti miðlinum vel. Til þessa hefur Twitter tapað fjármunum á hverju ári, og hefur gengið bréfa félagsins lækkað um 30 prósent á þessu ári.


Jack Dorsey, Twitter cofounder & interim CEO, is expected to be officially named as the company’s permanent CEO: http://t.co/drAovSmajL


— Forbes (@Forbes) September 30, 2015

Þá eru fjár­festar sagðir hafa efasemdir um að Dorsey geti stýrt tveimur félögum í einu, enda sé það krefjandi verkefni að byggja upp fyrirtæki og skrá það á markað, eins og til stendur að gera með Square.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár