Í þá tíð... Tító kjörinn forseti Júgóslavíu

Tító var kjörinn forseti Júgóslavíu á þessum degi árið 1953. Í þátíð er nýr liður á vef Kjarnans þar sem merki­legir atburðir liðinnar tíðar eru reifaðir.

Tító marskálkur.
Tító mar­skálkur.

Á þessum degi fyrir réttum 64 árum, hinn 14. janúar 1953, var Josip Broz, eða Tító marskálkur, eins og hann er oftast kallaður, útnefndur forseti Júgóslavíu.

Þrátt fyrir þessa upphefð hafði Tító þó farið með stjórn landsins allt frá lokum seinni heim­styrjaldar, en á stríðs­árunum stýrði hann uppreisnar­hópi kommúnista gegn yfirráðum Öxulveldanna í Júgóslavíu.

Á löngum stjórnar­ferli, sem lauk þegar hann lést árið 1980, 87 ára að aldri, skar Tító sig frá flestum öðrum einræðis­herrum austan Járn­tjaldsins, meðal annars með því að bjóða sjálfum Jósef Stalín byrginn.

Josip Broz fæddist árið 1892, í þorpi einu í Króatíu, sem var þá hluti af Austurrísk-ungverska keisara­dæminu. Hann barðist með austurríska hernum í fyrri heims­styrjöld og gat sér þar gott orð áður en hann var særðist og var tekinn höndum af Rússum. Þegar hann komst aftur til síns heima hafði keisara­veldi Habsborgara liðið undir lok og Króatía, Serbía og Slóvenía runnið saman í eitt konungs­ríki sem, árið 1929, hlaut nafnið Júgóslavía, Ríki Suður-slava.

Skömmu eftir heim­komuna gekk Tító til liðs við kommúnista­flokkinn, en var dæmdur í fangelsi árið 1928 fyrir störf sín fyrir flokkinn, sem hafði áður verið bannaður í landinu. Hann starfaði um hríð fyrir Komintern, alþjóða­samtök kommúnista, í Moskvu, en var svo sendur aftur heim til að skipuleggja flokk­starfið eftir forskrift Stalíns.

Þýskaland hertók Júgóslavíu árið 1941, en mættu harðri mótspyrnu frá skæru­liðum kommúnista, sem Tító fór fyrir. Tító og hans menn tóku völdin í Júgóslavíu árið 1945, en hófu fljótt að undir­strika sjálfs­ákvörðunar­rétt sinn, meðal annars með því að hlýta ekki tilskipunum Sovét­ríkjanna í einu og öllu. Stór munur var á stöðu Júgóslavíu og margra annarra ríkja í Mið- og Austur-Evrópu þar sem Rauði herinn hafði ekki tekið stóran þátt í frelsun landsins og voru ekki með mannafla þar til að hnykkja á aðfinnslum Stalíns.

Deilur milli Títós og Stalíns birtust ekki síst á vettvangi Cominform, sem var samráðs­vettvangur kommúnista­flokka og eins konar arftaki Comintern sem leystist upp á stríðs­árunum. Þar var Tító legið á hálsi fyrir að grafa undan alþjóða­hreyfingunni, en á móti lögðu Júgóslavar áherslu á að hvert ríki ætti að fara þær leiðir sem þeim hentaði best til að ná takmörkum kommúnismans.

Annar ásteitingarsteinn í sambandi Stalíns og Títós voru tilraunir marskálksins að innlima Albaníu og jafnvel Grikkland í samvinnu við Búlgaríu og mynda þannig, á Balkan­skaganum, mótvægi gegn áhrifum Sovét­ríkjanna.

Árið 1948 slitnaði svo endanlega upp úr sambandinu þegar Júgóslavíu var vísað úr Cominform, en eftir það var Tító frjálst að móta efnahag og þjóð­félagsgerð landsins eftir sínu höfði. Það fól meðal annars í sér að verkafólk og samtök þeirra réði mestu um starfsemi verksmiðja og annarra eininga en ekki ríkis­valdið, auk þess sem áætlana­búskapur var formlega lagður niður árið 1951. Þessi aðferða­fræði var oft kölluð Títóismi, sérstak­lega utanlands.

Tító nýtti sér stöðu sína á árunum eftir stríð til að stíga í vænginn við Banda­ríkin og þáðu þeir meðal annars fjárhags­aðstoð (sem var þó ótengd Marshall-aðstoðinni) einir austan­tjaldslanda.

Júgóslavneskt þjóðfélag fetaði þetta einstigi milli stór­veldanna þar sem þegnar landsins voru sannarlega frjálsari að mörgu leyti, heldur en viðgekkst í ráðstjórnar­ríkjunum þar sem ítök Sovét­ríkjanna voru meiri og oft alltumlykjandi. Engu að síður var Júgóslavía valdboðs­ríki þar sem aðrir flokkar en Kommúnista­flokkurinn voru bannaðir.

Þó Tító hafi snúið baki við Stalínismanum sótti hann engu síður í smiðju Stalíns. Meðal annars máttu andstæðingar Títós innanlands upplifa hreinsanir, eftir vinslitin við Sovét­ríkin 1948, þar sem tugum þúsunda manna var úthýst úr flokks­störfum og stjórn­sýslunni og þeir jafnvel sendir í fanga­búðir vegna gruns um að vera hald­gengir Sovét­ríkjunum og Cominform.

Eftir dauða Stalíns og valdatöku Krúsjeffs þiðnaði nokkuð kulið í sambúð Júgóslavíu og Sovét­ríkjanna, þó aldrei hafi í raun gróið um heilt þar á milli.

Tító lést í hárri elli, en Sambands­ríkið Júgóslavía varð ekki mikið langlífara. Ekki leið á löngu fyrr en þjóðernis­hyggja fór að rísa og jafnt og þétt fór að trosna á milli ríkjanna.

Klofningurinn vatt svo upp á sig þar til úr varð margra ára borgara­styrjöld þar sem nágrannar, vinir og og ættingjar bárust á banaspjót. Enn eimir eftir af ófriðnum þar sem vopnahlé í Bosníu Hersegóvínu stendur fremur ótraustum fótum og staða Kosovohéraðs sem sjálfstætt ríki er langt frá því að vera óumdeild. Meðal annars hafa hvorki Serbía né Bosnía viðurkennt sjálf­stæði héraðsins.

Annað markvert sem gerðist 14. janúar

1539

Spánn innlimar Kúbu.

1814

Danmörk lætur Svíum eftir yfirráð yfir Noregi með undirritun Kílarsáttmálans.

1814

Bandaríkjaþing samþykkir Parísarsáttmálann um formleg lok frelsisstríðsins.

1954

Marilyn Monroe giftist hafnaboltakappanum Joe DiMaggio.

1963

Charlie Watts trommar á sínum fyrstu tónleikum með Rolling Stones. Hefur ekki misst úr takt síðan.

1969

Matt Busby hættir sem þjálfari Manchester United

1977

David Bowie gefur út plötuna Low, hina fyrstu í Berlínarþríleiknum svokallaða.

1980

Sameinuðu þjóðirnar fordæma íhlutun Sovétríkjanna í Afganistan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár