Vilja nú hækka hjálmaskyldu í 16 ár

Umhverfis- og sam­göngu­nefnd Alþingis vill skylda öll börn á grunn­skóla­stigi til að nota hjálma á hjóli, þrátt fyrir mót­mæli reið­hjóla­fólks.

Hjálma­skylda hjól­reiða­manna verður hækkuð úr 15 árum í 16 ár, sam­kvæmt breyt­inga­til­lögu umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis. Lands­sam­tök hjól­reiða­manna hafa mót­mælt fyrri til­lögu nefnd­ar­innar um að skylda til notk­unar reið­hjóla­hjálma nái til allra undir 18 ára aldri. Í frum­varpi ráð­herra til umferð­ar­laga var upp­haf­lega miðað við að hjálma­skyldan yrði áfram 15 ár.

„Talsverð umræða var um málið og nefnd­inni bár­ust athuga­semdir um að þessi breyt­ing­ar­til­laga gengi of langt og myndi m.a. hafa áhrif á mark­mið sveit­ar­fé­laga um breyttar ferða­venjur og mögu­lega á greiðslu trygg­inga­bóta,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu. „Bent var á að hjálma­skylda gæti haft nei­kvæð áhrif að því leyti að hún gæti dregið úr hjól­reiðum. “

Segir í álit­inu að brýnt sé að hafa öryggi í hávegum þegar komi að hjól­reiðum eins og öðrum sam­göngu­mátum. „Með hlið­sjón af fram komnum sjón­ar­miðum sem og þeim athuga­semdum sem nefnd­inni bár­ust leggur nefndin til að hjálma­skylda nái til barna undir 16 ára aldri en þar með verði tryggt að hjálma­skylda taki til allra barna á grunn­skóla­stigi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár