Breiðfylking stærstu landssambanda og stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði, sem fara með samningsumboð fyrir 93 prósent þeirra sem starfa á honum, sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem hún lýsti viðræður við Samtök atvinnulífsins (SA) árangurslausar. „Ásteytingarsteinninn er forsenduákvæði um þróun verðbólgu og vaxta. SA hafa hafnað með öllu að í fjögurra ára samningi verði forsenduákvæði til varnar launafólki, hafi markmið varðandi verðbólgu og vexti ekki náðst.“
Í tilkynningunni segir að allir langtíma kjarasamningar á síðustu áratugum hafi verið undirritaðir með forsenduákvæðum sem heimila uppsögn að uppfylltum vissum skilyrðum. SA hafi hins vegar gert kröfu um afnám slíkra forsenduákvæða í komandi kjarasamningi, sem Breiðfylkingin segir að sé fáheyrð í kjarasamningagerð á Íslandi. „Krafan myndi þýða að launafólk eitt ber ábyrgðina og áhættuna af afleiðingum þess ef markmið samnings nást ekki. Furðulegt er að SA séu ekki reiðubúin að festa í langtímasamning þau markmið sem samtökin sjálf hafa margítrekað lýst sem algjöru meginmarkmiði hans: Að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef meginmarkmið kjarasamnings nást ekki, þá þurfa varnir að vera til staðar fyrir launafólk.“
Breiðfylkingin lýsir því djúpum vonbrigðum með að SA kjósi að sigla viðræðum í strand vegna þessa atriðis. „Sérstaklega er það sorglegt í ljósi þess að aðilar hafa lagt mikið á sig til að ná saman um hóflegar launahækkanir og samkomulag varðandi launalið er í meginatriðum í höfn. Undirritun kjarasamnings var í sjónmáli. Breiðfylkingin stendur sameinuð í kröfum sínum og í ákvörðun sinni um að lýsa viðræður árangurslausar. Formenn þeirra sambanda og félaga sem standa að Breiðfylkingunni munu funda saman strax á mánudag og nýta tímann í millitíðinni til upplýsingagjafar og samráðs við sitt bakland.“
Undir tilkynninguna rita Eiður Stefánsson, formaður samninganefndar Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar – sambands iðnfélaga, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir (1)