Plastkort enn mest notaða greiðslulausnin en snjallgreiðslur sækja á

Í hópi þess þorra fólks sem greiðir fyrir vörur eða þjónustu einu sinni í viku að lágmarki eru nú hátt í fjörutíu prósent byrjuð að nota snjall­tæki af einhverju tagi til þess að inna greiðslur að hendi, að jafnaði. Vægi reiðufjár minnkar sífellt.

Tækninni á sviði snjallgreiðslna fleygir fram og Íslendingar hafa tileinkað sér það hratt að nota síma og önnur snjalltæki til þess að greiða fyrir verslun og þjónustu.
Tækninni á sviði snjall­greiðslna fleygir fram og Íslend­ingar hafa til­einkað sér það hratt að nota síma og önnur snjall­tæki til þess að greiða fyrir verslun og þjón­ustu. Mynd: Pexels

Notkun áþreifanlegra greiðslu­korta á Íslandi hefur dregist nokkuð saman á síðustu árum, en að sama skapi hefur notkun greiðslu­korta í snjall­tækjum aukist. Árið 2018 notuðu 89 prósent þeirra sem á annað borð sögðust nota greiðslu­lausnir vikulega eða oftar plast­greiðslu­kort til að greiða fyrir vörur eða þjónustu, en núna árið 2022 er þetta hlutfall komið undir 60 prósent, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Seðla­bankann.

Að sama skapi eru nú 38,5 prósent byrjuð að nota greiðslu­kort í snjall­tækjum til þess að greiða fyrir vörur og þjónustu á sölu­stöðum. Árið 2020 var hlut­fallið 31,8 prósent, en snertilausar greiðslu­korta­lausnir á borð við Apple Pay, Google Wallet og samsvar­andi snjall­lausnir íslensku viðskipta­bankanna hafa orðið æ aðgengilegri á undan­förnum árum.

Notkun reiðufjár dregst áfram saman og sögðust einungis 1,8 prósent svarenda sem notuðu greiðslu­lausnir oftar en einu sinni í viku að jafnaði nota reiðufé til þess að greiða. Þetta kemur fram í umfjöllun um notkun reiðufjár á Íslandi í ritinu Fjármála­stöðugleiki, sem Seðla­bankinn gaf út á miðvikudag.

Þrátt fyrir að fáir segist helst nýta reiðufé á sölu­stöðum er velta reiðufjár í greiðslu­miðlun á sölu­stöðum áætluð í kringum 30 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins, sem myndi samsvara rúmlega 6 prósentum af heildar­veltu sölustaða. Þetta hlutfall hefur dregist saman frá árinu 2020, en þá var reiðufé áætlað um 8 prósent af heildar­veltu á sölu­stöðum.

82 milljarðar af seðlum og mynt í umferð

Í umfjöllun Seðla­bankans kemur fram að reiðufé í umferð hér landi sé um 2,5 prósent af lands­framleiðslu, sem sé frekar lágt hlutfall í alþjóð­legum saman­burði. Undir lok síðasta árs voru 82 milljarðar króna í seðlum og myntum í umferð í samfélaginu og hafði upphæðin hækkað um hálfan milljarð frá fyrra ári. Þar af voru um 50 milljarðar króna í 10.000 króna seðlum.

Reiðufé helsta svar Íslands við rofi í greiðslukerfum

Í Fjármála­stöðugleika segir að þrátt fyrir að notkun reiðufjár sé almennt lítil gegni það áfram mikilvægu hlutverki í rafrænum heimi til að stuðla að virkri og öruggri greiðslu­miðlun. Bent er á að Seðla­bankar standi nú frammi fyrir áskorunum í smágreiðslu­miðlun, meðal annars vegna aukinnar ógnar af netárásum sem beinast að greiðslu­lausnum og greiðslu­kerfum.

„Alvarleg netárás á greiðslu­miðlun getur leitt til þjónusturofs í lengri tíma og raskað miðlun fjármagns í hagkerfinu. Annars konar rof í innlendri rafrænni greiðslu­miðlun getur líka valdið skaða, m.a. ef netsamband rofnar við umheiminn eða alþjóðlegt korta­fyrirtæki ákveður að loka á notkun innlendra debet- og kredit­korta. Í dag fara um 99% allra greiðslu­korta­færslna í gegnum korta­innviði VISA og Mastercard. Ef kæmi til röskunar á rafrænni greiðslu­miðlun í lengri tíma þarf að gera ráð fyrir því að heimilin geti tryggt sér með öðrum leiðum nauðsynja­vörur eins og matvörur, eldsneyti og lyf,“ segir í umfjöllun Seðla­bankans.

Sem stendur væri notkun reiðufjár í reynd ein helsta lausnin við rofi í innlendri rafrænni greiðslu­miðlun og Seðla­bankinn segist eiga „nægar birgðir af seðlum og mynt til að bregðast við lang­varandi óvissu­ástandi“.

Minnst er á að innlendu viðskipta­bankarnir séu um þessar mundir sömuleiðis að koma á markaði með nýja hraðbanka­lausn þar sem ekki þarf að nota greiðslu­kort til þess að taka út reiðufé. „Það getur að einhverju leyti leyst vandann ef lokað yrði á innlend debet- og kredit­kort,“ segir í umfjöllun Seðla­bankans.

Þar er líka vikið að því að Seðla­bankinn sé um þessar mundir að meta leiðir sem komi til greina við innleiðingu á innlendri óháðri smágreiðslu­lausn, en slík lausn myndi virka ef eitthvað yrði til þess, t.d. netsambands­leysi við umheiminn, að ekki væri hægt að nýta alþjóð­lega korta­innviði. Í yfir­lýsingu fjármála­stöðugleika­nefndar frá því á miðvikudaginn sagði að mikilvægt væri skref hefðu verið tekin í þessar átt, í ljósi stöðunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár