Segir ríkið taka til sín 73 prósent af eingreiðslu vegna hækkunar lífeyrisréttinda

Prófessor emerítus og sérfræðingur hjá Eflingu segir að af þeim 76 þúsund krónum sem sjóðs­félagar í Lífeyris­sjóði verzlunarmanna geti vænst að fá að meðaltali í eingreiðslu muni ríkið taka til sín 55.700 krónur. Eftir sitji 20.300 krónur.

Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stefán Ólafsson, pró­fessor emeritus við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur hjá Efl­ing­u-­stétt­ar­fé­lagi, segir að ríkis­sjóður muni taka til sín 73 prósent af þeirri eingreiðslu sem sjóðs­félagar í Lífeyris­sjóði verzlunarmanna munu fá síðar í mánuðinum vegna tíu prósent aukningar á réttindum þeirra.

Sjóðurinn tilkynnti í morgun að stjórn hans hefði ákveðið að hækka áunnin líf­eyr­is­rétt­indi í sam­eign­ar­deild sjóðs­ins um tíu pró­sent, sem leiði til sam­svar­andi hækk­unar líf­eyr­is­greiðslna. Hækk­unin mið­ast við síð­ast­liðin ára­mót og er til­komin vegna góðrar ávöxt­unar eigna und­an­farin ár sem hefur styrkt trygg­inga­fræði­lega stöðu sjóðs­ins. Með­al­raun­á­vöxtun eigna síð­ustu 10 ára er 6,7 pró­sent, síð­ustu 20 ára 4,5 pró­sent og síð­ustu 30 ára 5,4 pró­sent.

Sjóð­ur­inn mun greiða í ein­greiðslu út upp­safn­aða hækkun á árinu og mun sú greiðsla ger­ast í nóv­em­ber. Hún nær til um tutt­ugu og eitt þús­und sjóð­fé­laga, nemur rúmum 1,6 millj­örðum króna eða að með­al­tali um 76 þús­und krónum fyrir hvern líf­eyr­is­þega.

Stefán segir í stöðu­uppfærslu á Facebook að eingreiðslan, sem er líkt og áður sagði 76 þúsund krónur að meðaltali á sjóðs­félaga, muni glögglega sýna virkni lífeyris­kerfisins, því þá taki við skerðingar hjá TR og skatt­greiðsla til ríkisins af þessari uppbót.

Ríkið muni þannig, samkvæmt útreikningum Stefáns, taka til sín 55.700 krónur af þessum 76.000 krónum „þannig að sjóð­félagi sem er elli­lífeyris­þegi fær í vasann rétt rúmar 20.300 krónur af þessum 76.000 krónum sem hann hefur áunnið sér aukalega í lífeyris­sjóði. Þar er miðað við sjóð­félaga sem hefur að jafnaði 200.000 krónur úr lífeyris­sjóði á mánuði.

Þetta segir Stefán að sýni „svart á hvítu hvernig ríkið leyfir fólki ekki að njóta þess ávinnings sem það hefur af skyldu­sparnaðinum í lífeyris­sjóðum, heldur tekur um 73 prósent af því í lækkun útgjalda vegna almanna­trygginga (TR) og í tekju­skatt. Skerðingar nema 43.244 krónum og tekju­skattur 12.430, eða samtals 55.674.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár