Ráðherra: Stundum mikilvægt að beita sér fyrir breytingum sem kjósendur er á móti

„Stundum þarf bara að taka pólitíska slagi sem kjörinn fulltrúi. Frjálst útvarp, Göngin & sala Lands­símans hefði verið fellt í þjóðar­atkvæði,“ skrifar Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra í umræðum um áfengis­frumvarpið.

„Stundum þarf bara að taka pólitíska slagi sem kjörinn fulltrúi. Frjálst útvarp, Göngin & sala Lands­símans hefði verið fellt í þjóðar­atkvæði,“ skrifar Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, á Twitter.

Tilefnið er umræða um ákall Birgittu Jóns­dóttur, þingkonu Pírata, um að frum­varp um breyt­ingu á smá­sölu áfeng­is verði sett í þjóðar­atkvæða­greiðslu. Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar, Bjartrar framtíðar og Pírata lögðu fram frumvarp í síðustu viku þar sem lagt er til að einka­leyfi Áfengis- og tóbaks­verslunar ríkisins á smásölu áfengis verði aflagt og smásala gefin frjáls að ákveðnu marki.

„Það líður ekki sá dag­ur sem ég hugsa ekki um það en alltaf skal það vera fyrsta af­vega­leiðing­in að ræða enda­laust um sama frum­varp Sjálfstæðsflokks­ins um bús í búðir. Ég legg til að ein­hver skelli í und­ir­skrift­arlista til þing­manna um að skella þessu bara í þjóðar­at­kvæði,“ skrif­aði Birgitta á Face­book í gær. 

Kristinn Ingi Jónsson, blaða­maður á Morgun­blaðinu, bregst við orðum Birgittu með þeim orðum að hugmyndin sé vond. „Frelsis­réttindi borg­aranna eru algild og eiga ekki að vera háð vilja meirihluta þjóðar hverju sinni,“ skrifar hann. 

Þórdís Kolbrún, sem virðist styðja áfengis­frumvarpið, tekur undir með Kristni og segir mikilvægt að kjörnir fulltrúar beiti sér stundum fyrir málum sem kjósendur eru á móti.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár