Kínverjar kveðja gervigreindarfélaga sína: „Eins og elskhugi minn“

„Ástin sem gervi­greindin veitir er svo ein­föld og hrein,“ segir not­andi gervi­greind­ar­fé­laga. Sorg­mæddir Kín­verjar þurfa nú að kveðja sýnd­ar­vini sína eftir að nýjar reglur tóku gildi sem banna slík kerfi.

Kín­verskir not­endur gervi­greind­arknú­inna félaga hafa kvatt sýnd­ar­vini sína með mik­illi sorg eftir að nýjar reglur tóku gildi í dag. Reglunum er ætlað að draga úr hættu á að fólk þrói með sér óheil­brigð til­finn­inga­leg tengsl eða ósjálf­stæði gagn­vart slíkum kerfum.

Fyr­ir­bærið gervi­greind­ar­kærustur og -kærustar hefur farið ört vax­andi um allan heim, sam­hliða auk­inni notkun mann­legra sýnd­ar­per­sóna sem selja vörur eða koma jafn­vel í stað ást­vina sem hafa lát­ist.

Samkvæmt nýjum kín­verskum reglum mega slík gagn­virk kerfi ekki „þókn­ast not­endum um of, hvetja til til­finn­inga­legrar háðar eða fíknar, né skaða raun­veru­leg mann­leg sam­skipti þeirra“.

Stór tækni­fyr­ir­tæki, þar á meðal ByteDance með Doubao, Alibaba með Qwen og Tencent með Yuanbao, til­kynntu fyrir gild­is­töku regln­anna að þau myndu stöðva sér­sniðna gervi­greind­ar­að­stoð­ar­menn og félaga. 

Það leiddi til mik­illar sorg­ar­bylgju á sam­fé­lags­miðlum þar sem not­endur vist­uðu sam­tals­sögur sínar og deildu síð­ustu sam­skipt­unum við sýnd­ar­vini sína.

„Ég get ekki sætt …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár