Af hverju eru svona fáir með hjálma? Dagbók frá Kaupmannahöfn VI.

Illugi Jökulsson hjólar um Kaupmanna­höfn og furðar sig á því hve fáir eru með hjálma.

Ungur íslenskur piltur skoðar hjólamenningu Dana.
Ungur íslenskur piltur skoðar hjóla­menn­ingu Dana. Af hverju eru þær ekki með hjálm?

Það er einstak­lega gaman að hjóla um Kaupmanna­höfn. Það er eitthvað verulega siðmenntað við hvað Danir treysta mikið á hjólin sín.

Ein ábending til Íslendinga sem fara að hjóla hér um götur: Passið ykkur á hjóla­stígunum að hjóla á jöfnum hraða og halda sem beinastri stefnu.

Ekki góna of mikið í kringum sig, því þá fer maður ósjálfrátt að sveigja svolítið til og frá á hjóla­brautinni.

Það er allt í lagi í Reykjavík þar sem fáir eru úti að hjóla.

En í Kaupmanna­höfn er alltaf einhver rétt á eftir manni á hjóla­brautinni eða um það bil að smjúga fram úr.

Með því að sveigja jafnvel bara svolítið til á brautinni, þá veldur maður hættu.

Það hafa nokkrir hreytt í mig ónotum nú þegar þar sem ég er á ferð á appelsínu­gula hjólinu, en ég er að læra!

En einu furða ég mig á.

Hér hjóla tugþúsundir um á hverjum degi og ég efast um að meira en svona 3-5 prósent séu með hjálma.

Maður skyldi ætla að í háþróuðu hjóla­samfélagi væru allir löngu komnir með hjálma ef þeir væru jafn gagnlegir og okkur er sagt.

Er kannski ekkert gagn í þeim? Af hverju nota svo fáir Dana hjálm?

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár