Svigrúm til launahækkana sé „takmarkað“ eða jafnvel „á þrotum“

Tveir hagfræðingar sem Þjóð­hagsráð fékk til þess að leggja mat á stöðu mála á vinnu­markaði núna í aðdrag­anda kjara­samninga­lotu segja að lítið svigrúm sé til launa­hækkana, ef það eigi að vera mögulegt að verja kaupmátt lands­manna.

Tveir hagfræðingar, sem Þjóð­hagsráð fékk til þess að vinna greinar­gerðir um stöðu og horfur á vinnu­markaði núna í aðdrag­anda kjara­samninga, komust að þeirri niður­stöðu að um þessar mundir sé svigrúm í hagkerfinu til nafn­launa­hækkana „takmarkað“ eða jafnvel „á þrotum“, ef tryggja eigi að kaup­máttur launanna sem landsmenn fá í vasann haldi sér.

Greinar­gerðir þeirra Katrínar Ólafs­dóttur dósents í hagfræði við HR og Arnórs Sighvats­sonar hagfræðings voru birtar á vef stjórnar­ráðsins í dag, samhliða tilkynningu um starfsemi Þjóð­hagsráðs á árinu.

Ætti ekki að gefa hugmyndafræði norræna líkansins upp á bátinn

Katrín segir í skýrslu sinni að hætt sé við að nafn­launa­hækkanir í þeirri kjara­samninga­lotu sem stendur fyrir dyrum fari „að mestu út í verðlag“ í því flókna efnahags­ástandi sem nú blasi við. „Því er æskilegast í þessari samninga­lotu að leita leiða til að tryggja kaupmátt þeirra sem verst standa á vinnu­markaði fremur en að leggja áherslu á nafn­launa­hækkanir,“ skrifar hún í inngangi greinar­gerðar sinnar, en í skýrslunni kemur fram það mat Katrínar að einna mikil­vægast sé að „setja ramma utan um samninga­viðræðurnar svo að ekki hefjist nýtt höfrunga­hlaup í næstu samningum“.

„Þótt ekki hafi tekist að finna leið til að taka upp einhverja útgáfu af norræna líkaninu í gegnum Salek-samstarfið ætti ekki að gefa það upp á bátinn að hugmynda­fræði norræna líkansins verði gefið meira pláss í kjara­samningum fram­tíðarinnar,“ segir Katrín í skýrslu sinni.

Auk þess bendir hún á að leggja mætti áherslu á einstök atriði við kjara­samnings­gerðina sem lúta að öðru en beinum launa­hækkunum.

Þar lítur Katrín meðal annars til áhrifa styttri vinnuviku, brúunar umönnunar­tímabilsins frá fæðingar­orlofi til leikskóla, hugmynda um að setja þak á yfirvinnu­greiðslur og tryggja að tíma­bundnum vinnu­toppum sé mætt með því að yfirvinna gefi aukinn frítíma, aðgerðir sem tengjast kulnun og endurkomu á vinnu­markað, sí- og endur­menntun, framhald fjarvinnu eftir COVID-faraldurinn og sérstaks átaks til að jafna launamun kynjanna.

Þá nefnir Katrín einnig að bæta mætti eftirlit með fákeppnis­fyrirtækjum og efla Samkeppnis­eftirlitið, þar sem fyrirtæki í fákeppni hafi meiri möguleika á að mynda hagnað en þau sem eru í samkeppni. Ástæða sé til að „hafa eftirlit með þessum fyrir­tækjum svo að þau nýti ekki stöðu sína á markaði til að auka hagnað og tryggja að aukin skilvirkni í rekstri skili sér til neytenda“.

„Það gæti orðið öllum neytendum í hag að bæta almennt eftirlit með fyrir­tækjum í fákeppni, ekki síst þeim sem eru á mörkuðum þar sem stórum hluta tekna einstaklinga er varið, t.d. dagvöru­fyrirtækjum, bensín­fyrirtækjum, bönkum og trygginga­fyrirtækjum,“ segir Katrín í skýrslu sinni.

Þar nefnir hún einnig að bæta mætti stöðu einstakra hópa, til dæmis þeirra sem eru undir lágtekjumörkum og leigjendum á húsnæðis­markaði sem búa við íþyngjandi húsnæðis­kostnað.

Óvissa önnur og meiri en oftast áður

Í skýrslunni fer Katrín yfir það að nú sé verið að fara í kjara­viðræður við mikla óvissu.

„Framtíðin er alltaf óviss, en óvissan nú er önnur og meiri en oftast áður. Það dregur úr hagvexti í heims­búskapnum og þótt stríðið í Úkraínu hafi minni áhrif hér á landi en víða annars staðar er útlit fyrir að þau verði nokkuð langvinn. Áhrifa Covid-19 mun einnig gæta áfram. Fleiri afbrigði veirunnar gætu skotið upp kollinum. Á alþjóða­markaði hafa líkur aukist á skorti á eldsneyti og einstökum matvælum og sumir spá hungurs­neyð meðal þeirra er veikast standa. Sérfræðingar eru langt frá því að vera sammála um hvernig skuli bregðast við aðstæðum. Alþjóðlegar verðbólgu­spár hafa hækkað mikið síðustu mánuði og hagvaxtar­spár lækkað. Líkur á skarpri niður­sveiflu hafa aukist til muna, þótt fáir séu enn tilbúnir að spá slíku. Það er mikil­vægara en oft áður að fjármála­stjórn og peningamála­stjórn styðji hvor aðra og stefni að sama markmiði í þeirri erfiðu stöðu sem uppi er í þjóðar­búskapnum. Þá er mikilvægt að hagstjórn bregðist skjótt og vel við breyttum aðstæðum, en búast má við breytingum á næstu misserum. Jafnframt samvinna við aðila vinnu­markaðarins að vera góð til að tryggja raun­verulega kjarabót í næstu kjara­samningum í stað þess að samið verði um háar nafn­launa­hækkanir sem fara beint út í verðlag og úr verði gamal­kunnar víxl­hækkanir verðlags og launa,“ segir í skýrslu Katrínar.

Óvenjulegar hagstæðar aðstæður síðasta áratugar ekki lengur fyrir hendi

Arnór Sighvatsson, sem er fyrr­verandi aðstoðar­seðla­bankastjóri, fjallar í greinar­gerð sinni um „marg­brotið samspil vinnu­markaðar, hagkerfis og hagstjórnar á Íslandi sem veldur því að erfitt getur reynst að viðhalda stöðug­leika á vinnu­markaði og öðrum sviðum þjóðar­búskaparins“.

Hann segir um að mat á vexti fram­leiðni, sem svigrúm til launa­hækkana er gjarnan metið út frá, sé háð mikilli óvissu, einkum þegar tekið sé mið af nýlegum gögnum. Þannig geti mælingar á lands­framleiðslu t.d. tekið umtals­verðum breytingum í áratug eftir að fyrstu áætlanir birtast, auk þess sem mat á heildar­vinnu­stundum sé mikilli óvissu háð. Því segir hann að það „virðist skynsamlegt að horfa yfir langt tímabil fremur en nýlegar breytingar þegar lagt er mat á svigrúm til launa­breytinga, með fyrirvara um að langtíma­leitni getur verið í vexti fram­leiðni“.

Undir lok greinar­gerðar sinnar svarar hann þeirri spurningu sem Þjóð­hagsráð lagði fyrir, um sjálft svigrúmið, og segir að árin eftir fjármála­hrunið 2008 hafi myndast „ákveðið svigrúm fyrir launa­breytingar eftir að hlutfall launa af verðmæta­sköpun lækkaði verulega í kjölfar kreppunnar.“

En nú segir hann að önnur mynd blasi við:

„Á undan­förnum árum hefur launa­hlutfallið verið að færast upp í eða yfir langtíma­meðaltal. Verulegur afgangur hafði myndast á viðskiptum við útlönd sem nú hefur a.m.k. tíma­bundið snúist í halla. Ferðamanna­bylgjan og viðskipta­kjara­bati leiddi til gengis­hækkunar sem ásamt lítilli alþjóðlegri verðbólgu varð til þess að laun gátu hækkað verulega án þess að það hefði sýnileg áhrif á innlenda verðbólgu. Þetta svigrúm er nú á þrotum og erlendir kostnaðar­liðið sem áður lækkuðu til mótvægis við aukinn innlendan kostnað eru nú sjálf­stæður verðbólgu­valdur. Launa­breytingar sem samið verður um í næstu kjara­samningum þyrftu að taka mið af því að hinar óvenju­legu hagstæðu aðstæður eru ekki lengur fyrir hendi. Verði það gert má binda vonir við að hægt verði að varðveita bæði ytra og innra jafnvægi í þjóðar­búskapnum og verja kaupmátt þeirra kjara­samninga sem undir­ritaðir verða,“ skrifar Arnór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár