Olían lækkar enn - Áhyggjur af Japan

Olíuverð hefur heldur lækkað, einkum verð á hráolíu miðað gang mála á bandarískum markaði. Það er nú komið niður í um 40 Bandaríkja­dali en var í tæplega 110 dölum fyrir rúmlega ári síðan.

Verð á hráolíu (Crude oil) hefur lækkað nokkuð undan­farna daga og er nú komið niður í um 40 Bandaríkja­dali á tunnuna, miðað við gang mála á Bandaríkja­markaði samkvæmt markaðs­upplýsingum sem Wall Street Journal tekur saman. Á síðustu tveimur mánuðum hefur það sveiflast á milli 45 og 50 Bandaríkja­dala.

Verðið hefur nú lækkað úr 110 Bandaríkja­dölum niður í 40 á rúmlega fjórtán mánuðum, og hefur þessi hraða verð­lækkun nú þegar haft alvarlega efnahagsleg áhrif á mörg ríki þar sem olíu­viðskipti eru mikil að umfangi og margfeldis­áhrif á ýmsa þjónustu fyrir hendi. Má þar nefna Noreg, Rússland, Brasilíu og Nígeríu, en staða mála hefur breyst verulega til hins verra í þessum löndum á skömmum tíma.

Lækkun olíuverðs hefur áhrif

Norðmenn eru þó með sterkar stoðir í sínu hagkerfi, en eins og greint var frá í ítarlegri

frétta­skýringu á vef Kjarnans á dögunum

, er mikil verð­lækkun á olíu ekki farin að hafa mikil neikvæð áhrif á gang efnahags­mála enn sem komið er, en búist er við því að þau komi fram eftir því sem líða tekur á þetta ár, ef verðið á olíunni hækkar ekki. Sérstak­lega á þetta við um Rogaland, þar sem Stavanger er stærsta borgin. Á því svæði eru olíu­framleiðsla og ýmis þjónusta í kringum olíuiðnað, langsamlega stærsti atvinnu­vegurinn, en Statoil er með höfuð­stöðvar sínar í Stavanger. Í Rogalandi, það er Stavanger og nágranna­sveitar­félögum, búa um sex þúsund Íslendingar en samtals er rúmlega tíu þúsund Íslendingar búsettir í Noregi um þessar mundir.

Áhyggjur fjárfesta af gangi mála í Japan

Samhliða lækkun olíuverðs á heims­markaði, hefur gangur efnahags­mála í Japan valdið fjár­festum nokkrum áhyggjum, samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal. Annan ársfjórðunginn í röð hefur samdráttur verið í hagkerfinu, og virðast örvunar­aðgerðir sem ríkis­stjórn Shinzo Abe forsætis­ráðherra greip til í byrjun ársins, ekki vera að hafa mikil áhrif á ganga mála til hins betra, í það minnsta ekki enn sem komið er. Japanska hagkerfið er það þriðja stærsta í heiminum, á eftir Kína og Banda­ríkjunum, og skiptir gangur efnahags­mála í landinu miklu máli fyrir Asíu­markað. Abe forsætis­ráðherra hefur sagt, að áætlun hans um aukinn vöxt og meiri þrótt í hagkerfinu sé enn í gildi, og vonir standi til þess að hagtölurnar batni á næstu misserum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár