Fleiri Bandaríkjamenn horfðu á úrslitaleik kvenna á HM en úrslitaleik karla í fyrra

Talið er að hátt í 24 milljónir bandarískra sjónvarps­áhorfenda hafi horft á beina útsendingu á FOX sjónvarps­stöðinni frá úrslita­leik HM kvenna sem fram fór í gær. Kvennalið Banda­ríkjanna tryggði sér þar sinn fyrsta heims­meistara­titil frá árinu 1999 eftir æsispennandi 5-2 sigur á móti sterku liði Japana, en úrslita­leikurinn fór fram í Vancouver í Kanada. Frétta­miðillinn Quartz fjallar um málið.

Áhorfið á leikinn hjá FOX er töluvert meira en áhorfið á úrslita­leikinn á HM karla sem fram fór í Brasilíu í fyrra, þegar Argentínu­menn og Þjóð­verjar áttust við. Þá horfðu um 17 milljónir sjónvarps­áhorfendur á leikinn, í beinni útsendingu á bandarísku sjónvarps­stöðinni ABC, þar sem Þjóð­verjar komu sáu og sigruðu.

Þá er talið að um níu milljónir spænsku­mælandi Bandaríkja­manna hafi horft á leikinn á sjónvarps­stöðinni Univision, þar sem útsendingin var á spænsku. Úrslita­leikur kvenna í gær var sömuleiðis sendur út á spænsku í Banda­ríkjunum á sjónvarps­stöðinni Telemundo, en áhorfs­tölur þar hafa enn ekki verið gefnar út.

Auk þess að slá áhorfinu hjá bandarískri sjónvarpsstöð á úrslita­leik karla á HM 2014 ref fyrir rass, sló úrslita­leikur kvenna á HM nokkur áhorfsmet.

Aldrei áður hafa fleiri horft á landsleik bandarísks landsliðs í fótbolta, en fyrra metið var sett í fyrra þegar karla­landslið Banda­ríkjanna og Portúgal áttust við á HM 2014 í Brasilíu. Og þá gæti áhorfið á leikinn reynst meira en meðal­áhorf á úrslita­rimmu Cleveland Cavaliers og Golden State Warriors í NBA körfu­boltanum, en þar horfðu að meðaltali 20 milljónir sjónvarps­áhorfenda á hvern leik liðanna, sem urðu sex alls.

Áhorfið á leikinn skýrist auðvitað af velgengni kvenna­landsliðs Banda­ríkjanna í fótbolta, en áhorfið er sömuleiðis til marks um uppgang knatt­spyrnunnar í landinu, þar sem íþróttin berst um áhorf við rótgrónar íþrótta­greinar eins og ruðning, körfu­bolta, hafna­bolta, íshokkí, tennis og golf.

Þá er áhorfið ekki síður til marks um sívaxandi áhuga á íþróttum kvenna í Banda­ríkjunum. Þrátt fyrir mikla karlrembu, launa­mismunun og þá staðreynd að sjónvarps­stöðvarnar sýni íþróttum kvenna litla sem enga athygli, fer áhugi á íþrótta­iðkun þeirra vaxandi bæði í Banda­ríkjunum og víða um heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár