Viðsnúningur í viðhorfum Vigdísar Hauksdóttur eftir valdatökuna

Þingmenn Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks lögðu fram þings­álykt­unnar­tillögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðlsu um viðræðu­ferli Íslands og ESB árið 2010.

Vigdís Hauks­dóttir, ásamt Ásmundi Einari Daðasyni, Pétri H. Blöndal og Árna Johnsen, lögðu fram þings­ályktunar­tillögu árið 2010 um að þjóðar­atkvæðis­greiðsla færi fram um aðlögunar- og viðræðu­ferli Íslands og Evrópu­sambandsins. Þings­ályktunar­tillagan strandaði í þinginu líkt og mátti búast við þar sem Vigdís og félagar voru í stjórnar­andstöðu. Í þings­ályktunar­tillögunni koma þó eftir­farandi orð fram sem lýsa vel viðhorfs­breytingu þingmanna við að fara úr stjórnar­andstöðu í ríkis­stjórnar­samstarf: „Alþingi eitt hefur vald til að draga umsóknina til baka, en minnt er á að sami þing­meirihluti situr nú og við samþykkt umsóknarinnar.“

„Þetta mál snýst um rétt þjóðarinnar til að segja skoðun sína á því hvort eigi að halda áfram með aðlögunar­ferlið eða ekki“

„Þetta mál snýst um rétt þjóðarinnar til að segja skoðun sína á því hvort eigi að halda áfram með aðlögunar­ferlið eða ekki,“ sagði Vigdís svo í umræðu um tillöguna.

Eins og fram hefur komið í fréttum ákvað ríkis­stjórnin á dögunum að slíta aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið með bréfa­sendingu án þjóðar­atkvæða­greiðslu og án þess að taka málið upp á Alþingi. 

Hafa umhverfst í afstöðu sinni

Niðurlag ályktunarinnar hljóðar svo líkt og það komi úr munni núverandi stjórnar­andstöðu. „Þjóðar­atkvæða­greiðsla er viðurkennd aðferð til að leiða fram þjóðar­vilja í mikil­vægum málefnum. Þjóðar­atkvæða­greiðsla um hvort halda eigi áfram viðræðu­ferli Íslands og Evrópu­sambandsins er brýnt hagsmunamál allrar þjóðarinnar. Allir stjórn­málaflokkar tala fyrir auknu lýðræði og beinni aðkomu þjóðarinnar að ákvarðana­töku, sér í lagi þegar um stór deilumál er um að ræða. Nú reynir á að sýna þann vilja í verki,“ segir í þings­ályktunar­tillögunni.

Breytt afstaða til lýðræðis

Þetta er ekki eina dæmið um að Vigdís segi eitt í stjórnar­andstöðu en annað í ríkis­stjórnar­samstarfi. Í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni árið 2012 sagði hún til að mynda að skoðakannanir bentu til þess að meirihluti lands­manna vildi ekki að Ísland gengi í Evrópu­sambandið.  „Skoðana­kannanir sem við erum búin að vera að horfa á núna í eitt og hálft ár sýna það að landsmenn stíga ekki sama dans og ríkis­stjórnin þannig að núna verður meirihlutinn að fara að ráða hér í þessu landi,“ sagði Vigdís þá. Skoðana­könnun sem Frétta­blaðið lét gera í lok síðasta mánaðar benti til að um 80 prósent lands­manna vilja þjóðar­atkvæða­greiðslu um áframhald viðræðna við Evrópu­sambandið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár